January 30th, 2005 by admin
Aldrei slíku vant þá er ég bara búinn að mynda talsvert nú undanfarið….
Hér má t.d sjá smá syrpu sem ég tók í dag af henni Þórdísi.
Ekki slæmt fyrir dramadrottningu eins og mig sjálfan að fá módel sem er með diploma í drama……
Kannski full ástæða að minnast á umdeilda leiksýningu sem nú er verið að sýna í Loftkastalanum, (þar sem ég hef sterkan grun um þær fáu sálir sem hér koma aðhyllist hluti sem eru umdeildir) sem umrædd Þórdís hefur starfað að og ber það skemmtilega heiti Ég er ekki Hommi!
Mér hlotnaðist sá heiður að fá að bera þetta verk augum um daginn og verð að segja að mér var talsvert skemmt.
Leiksýningar eru jafnan ekki skemmtanir sem ég sæki en verð þó að mæla með þessu þar sem þetta er eitthvað sem ég myndi kjósa að kalla Leiklist á mannamáli., og ekki skemmir fyrir að húmorinn er sótsvartur á köflum og boðskapurinn eitthvað sem snertir okkur öll…….
Lifið Heil.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 26th, 2005 by admin
Tók þátt í skemmtilegum ljósmyndagjörning í dag með tveim af uppáhalds ljósNyndurunum mínum, þar sem ég var báðum megin við myndavélina.(ekki í einu þó)
Afraksturinn var eitthvað það rösalegasta sem sést hefur í íslenskri ljósmyndasögu.
Sýnist á öllu að ég og Árni séum eitt heitasta parið í módelbransanum í dag….
Afurðirnar verða ekki bornar á borð fyrir almennan markað alveg strax þar sem þær eru önnum kafnar að vinna til verðlauna.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 25th, 2005 by admin
Telst það ekki vera merki þess að maður sé orðinn þokkalegur ljósmyndari þegar fólk er farið að stela myndum manns í auglýsingarskyni sér sjálfum til framdráttar?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
January 22nd, 2005 by admin
svo virðist sem hljómsveitin sem kveikti áhuga minn á Hardcore músík sé að leggja upp laupana…
ðe word on the street segir að Mínus séu að pakka saman?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
January 19th, 2005 by admin
Mig rak hreinlega í rogastans áðan þegar ég rakst á plötudóm Tarfsins ógurlega um nýbakaða breiðskífu Converge.
Ekki að dómurinn hafi verið á neinn hátt byltingarkenndur, heldur fullyrðir Tarfurinn að þeir Converge menn séu væntanlegir hingað til lands í Mars næstkomandi…..
Ef þetta kemur manni ekki umsvifalaust í hátíðarskap eins og stórvinur minn kemst svo skemmtilega að orði, þá bara veit ég ekki hvað geir það….
Mikið væri nú gaman ef kórdrengirnir í KLINK fengju nú þann óumdeilanlega heiður að verma upp mannskapinn fyrir þessa höfðingja?!?!?!
Þið sem hafið ekki hugmynd um hvað ég er að tala um, skuluð bara skammast ykkar niður í rassgat, bregðast skjótt og örugglega við og kynna ykkur málið t.d á heimasíðu sveitarinnar www.convergecult.com
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 18th, 2005 by admin
Þetta Staðfestir það sem ég hef lengi haldið fram, íþróttaiðkun er stórhættulegt helvíti og ber að forðast í lengsu lög.
Ég þakka myrkrahöfðingjanum fyrir það á hverjum degi að hafa forðað mér frá boltasparki og öðrum banvænum íþróttaiðkunum
Ekki spurja mig hvernig stóð á að ég var að lesa íþróttasíður Morgunblaðsins!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
January 16th, 2005 by admin
Farin var hópferð um Reykjanesið á vegum ljosmyndakeppni.is í dag.
Þar sem ég er helst til félagsfælinn maður, og illa við fólk almennt telst það fréttnæmt að ég hafi verið með í för.
Þetta var þó ágætt allt saman og má sjá þær myndir sem mér tókst að sjóða saman úr herlegheitunum í galleríinu…..nánar tiltekið HÉR
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
January 13th, 2005 by admin
Einu sinni sem oftar var ég staddur í lúxusbifreið þeirri er ég hef til daglegra afnota, klukkan lauslega áætlað í kringum 22:00 á miðvikudagskvöldi og minnti að þá ætti að vera dordingull.com geðveiki á X-inu sem ég hlusta gjarnan á í þessum bílferðum mínum um borg og bí að sendast með sælgæti og tölvuíhluti til fársjúkra fíkla hér á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kvöld aftur á móti greip ég í tómt……..X-ið gaf bara ekki frá sér nein hljóð.
Skelfingin náði þó ekki að setjast að í sálu minni á þessari stundu enda var mér ekki ljóst hvers eðlis vandamál þetta var og skipti því glaðbeittur á plan 2! ( þessu tilfelli var það Rás2 sem getur alveg virkað í neyðartilfellum sem þessum.)
Þegar heim var komið bárust mér aftur á móti fregnir þess efnis að X-ið ásamt fleirri útvarpsstöðvum á vegum Íslenska útvarpsfélagsins væri hætt útsendingum fyrir fullt og allt.
Ég var sem eldingu lostinn, Hvað með Freysann, Tvíhöfða, Dordingull.com þáttinn ofl ofl!?!?!?!
Ætlar íslenska útvarpsfélagið að gefa frat í þennan hóp hlustenda sem ég leyfi mér að fullyrða að sé ansi stór og breiður hópur?
Eða er kannski miðillinn útvarp að syngja sitt síðasta?
Hver sem ástæðan kann að vera fyrir þessum lokunum þá er ljóst að dagurinn í gær var sorgardagur fyrir íslenska Rokktónlistarunnendur, hvort sem er hlustendur eða tónlistarmenn.
F**k U Very much!
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
January 11th, 2005 by admin
Mér líður alveg ótrúlega vel laaaangt innan í mér að vita til þess að nýtt season af 24 sé að hefja göngu sína vestanhafs.
Einhver sagði mér að mr Bauer hefði verið hér í kringum áramótin að rannsaka meint hryðjuverk hjálparsveitamanna á fjárhag landsmanna sem og geðheilsu, en þó hefur það ekki fengist staðfest.
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
January 5th, 2005 by admin
Ef svo er þá er Kirkja Satans að leita að þér í þessum töluðu orðum.
Eins og sjá má á vefsíðu þessarar heilögu kirkju þá eru þessir fírar mjög smartir í taujinu ásamt því sem spekin gjörsamlega vellur úr öllum þeirra vitum.
Er Satanismi fyrir þig?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »