December 31st, 2004 by admin
Afhverju ætli fólki “finnist” svona mikið?
Er hægt að komast af án þess að finnast eitthvað um allt og svo líka ekki neitt?
Grábröndóttur köttur með sportrendur þvert yfir skottið endilangt gæti sennilega meikað einhvern sens ef að klukkan væri ekki orðinn svona margt, en svakalega þykir fínt nú á dögum að maka sig allan út í rækjusalati yfir kvöldfréttunum!
Ætli fegurðardrottningar kúki, eða kannski er það fyrir neðan þeirra virðingu?
Ég þoli illa hrásoðið píkupopp sem gæti stafað af pönkdýrkun á yngri árum, en hef samt staðið mig að því að syngja með í bílnum stundum þegar enginn heyrir til!
Ætli allt fólk sé svona einfalt og fyrirsjáanlegt eða er það bara Ég?
Pælingin var að skrifa færslu án þess að nota orðið Ég en mér sýnist það vera erfitt í þessu formi ritmáls!
Hef nefnilega komist að raun um að það að Blogga er ákveðið afbrigði af Sjálfkynhneigð, og það að þrífast á að lesa blog myndi þá líklega vera einhverskonar gæjufetish.
Held samt að fólk ætti að kveðast meira á eða jafnvel skrifa kvæði í staðinn fyrir að vera að þessu helvíti…..
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
December 29th, 2004 by admin
Það hlaut að koma að því að maður ynni Borðakvikindi á DPChallenge!
Myndina sem um ræðir og og bar sigur úr býtum í Gæludýrakeppni má sjá Hér
Heyr Heyr
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
December 26th, 2004 by admin
Er Jólasveinninn útspil Kölska til að breiða yfir hinn raunverulega boðskap jólanna?
Er Konan hans Jóns Gnarr einungis hluti af stærsta plotti þeirra Tvíhöfða félaga?
Mun koma hins víðfræga Bobby Fischer hingað til lands gera ísland að næsta skotmarki BNA manna í herferð þeirra gegn hryðjuverkum?…….
Þessum spurningum og mörgum fleirrum munum við líklegast ekki fá svör við fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári, en ljóst þykir að ofneysla á þráu sauðakjöti liggur eins og mara yfir landsmönnum þessa dagana og fátt annað framundan en að liggja og melta allar kræsingarnar, hvort sem þær voru sjálfum Jesú til heiðurs nú eða bara sataníska Jólasveininum sem tekur nú brátt saman föggur sínar og heldur til síns heima
Mig langar að óska þeim villuráfandi sálum sem hingað kunna að villast með reglulegu millibili og hafa ennþá ekki hlotið jólakveðju frá minni hendi alls hins besta og þakka jafnframt fyrir heimsóknirnar á árinu sem nú er að renna sitt skeið
Gleðileg Jól 
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
December 22nd, 2004 by admin
It’s not just a fairytale painted by me
It’s not just loneliness between you and I
If on magic mountain you find you can breath
Then stay and don’t look back
To the blue woven sky
Nokkuð ljóst þykir að skandall ársins er að hafa ekki haft rænu á að sækja tónleika hljómsveitarinnar Blonde Redhead í Austurbæ á dögunum.
Klúðrið fólst nú samt eiginlega í því að snilldin hafði ekki orðið mér nægjanlega ljós þegar þetta fólk bar hér að garði svo sennilega neyðist ég til að sætta mig við orðin hlut, en ljóst er að Misery is a Butterfly er sennilega ein af skemmtilegri skífum sem mér hafa borist til eyrna á síðustu misserum.
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
December 21st, 2004 by admin
Það er hér með bókfært að undirritaður er VerðlaunaljósNyndari!
Hér má sjá úrslit í Jólamyndakeppni á ljosmyndakeppni.is þar sem mynd af fögru afkvæmi mínu endaði í 2. sæti!
Nefnd á vegum zeranico holdings er nú í þessum töluðu orðum að fara yfir hvaða möguleikar eru á að koma verðlaunafénu undan skatti og er von á niðurstöðu á milli jóla og nýárs.
Lifið Heil
p.s einnig má benda á að nokkrar myndir frá x-mas má finna –> hér ef einhver hefur á því áhuga
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
December 19th, 2004 by admin
Tell me what you dont like about your self?!?!
Þeir sem hafa séð sjónvarpsþættina Nip Tuck ættu að kannast við þessa setningu sem þættirnar hefjast gjarnan á.
Eftir að hafa horft á ótæpilegt magn af þessum þáttum hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það er eitt og annað sem ég myndi vilja láta snurfusa til þess að Ég líti út að utan eins og mér líður innan í mér, sem er klassísk ástæða fyrir að leggjast undir 15 Blade skurðlækna af þessu tagi.
Við lifum á 21. öldinni og ættum ekki að þurfa að skammast okkar eitt augnablik fyrir að nýta okkur þær tækninýjungar sem gera okkur kleift að gera það sem okkur dettur í hug í þeim tilgangi að fegra útlit okkar.
Hvað hyggst þú lesandi góður gera varðandi útlit þitt nú fyrir hátíð hégóma og viðskiptasigra?
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
December 18th, 2004 by admin
Ég var einmitt að skeggræða við félaga mína um daginn hversu kjánalegt og ótæmandi starfsheiti “Kerfisfræðingur” væri nú um daginn.
Eitt af því sem ég hafði til málana að leggja í þeim umræðum var að maður gæti rétt eins kallað sig snilling, þar sem hvorugt væri lögverndað starfsheiti og því gæti hver sem er kallað sig hvort sem honum sýndist henta betur fyrir þá kunnáttu sem viðkomandi hefði yfir að ráða.
Svo virðist sem yfirmenn á tölvudeild Íslandsbanka séu sammála mér í þessu þar sem þeir eru einmitt nú að óska eftir Snillingum til starfa!
Ert þú lesandi góður snillingur?
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
December 15th, 2004 by admin
Fyrir ykkur sem ekki vitið það þá er notendanafnið zeranico case sensitive þannig að ef þú skrifar Zeranico nú eða bara zErAniCo þá registerar það ekki og aðgangur að internetvitund minni er óheimill.
Eftir 3 misheppnaðar tilraunir verður viðkomandi útilokaður með öllu úr gagnabankanum!
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
December 14th, 2004 by admin
Að fólk skuli vera dæmt af lífi nú þegar við erum að sigla áleiðis inn í 21. öldina þykir mér afar ósmekklegt.
En að Fögnuður skuli brjótast út á meðal skrílsins þegar slíkt er gjört kunnugt finnst mér argasta villimennska!
Er ekki dásamlegt að geta haft skoðanir á öllum fjandanum?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
December 13th, 2004 by admin
Ég hef komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að maður öðlast mun dýpri skilning á kvikmyndum ef maður horfir á þær sofandi.
Einnig er með þessari aðferð hægt að horfa á mjög leiðinlegar kvikmyndir án þess að það valdi manni teljandi vandræðum eða persónuleikabrestum, sem gjarnan gerist í svæsnustu tilvikum.
Í framhaldi af þessari uppgötvun hef ég ákveðið að hætta mér út á mjög hálan ís og gera tilraun með að horfa á Sleepless in Seattle með þessum hætti og má búast við niðurstöðum fljótlega.
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »