Are you?

November 30th, 2004 by admin

Svo virðist sem mér komi til með að gefast tími til þess að spila Half Life 2 einu sinni eða tvisvar á næstu misserum!
Nú eða kannski klára sjálfstætt fólk?

Allavega hafa orðið kaflaskipti í mínu lífi sem getur ekki annað en boðað á gott!

“You are not your job.
You are not how much you have in the bank.
You are not the contents of your wallet.
You are not your fucking Khakis.
You are not a beautiful and unique snowflake.
You are the all-singing, all-dancing crap of
the world.”

Þessi ódauðlegu orð koma óneitanlega upp í huga mér á þessum degi sem tekur enda eins og aðrir dagar og ekkert merkilegt svosem um það að segja.

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Irc

November 30th, 2004 by admin

já ég lýg ekki ég var ginntur á mIrc í gær algerlega grandalaus í ljósmyndadelluni minni.

Mér varð fljótt ljóst það sem ég reyndar vissi fyrir og það er það að þetta er samskiptatæki ættað úr helvíti og ber ekki undir neinum kringumstæðum að nota ef viðkomandi vill halda geðheilsu.

Rassgat

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

November 25th, 2004 by admin

Merkilegt nokk þá er ein af myndunum mínum á blaðsíðu 30 í Fréttablaðinu í dag.

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Dásemd og unaður

November 24th, 2004 by admin

þegar rikur ur inniskónum a teppinu inni i friðhelgi heimilisins, þá er einkvað undir skósólunum sallafint..Skolprik er sama og margir þvag litrar sem sullast um Blóð rás samfélagsins og slík ógn þarfnast Afdjöblunar.

Skitseiðin þo þið flaggið flikum flottum skjanna kvitum glansandi
þá eru það þó eg og við sem breiðast glottum
þegar þið farið gulli hlaðin til helvitis anskotans dansandi

Þessi dásamlega speki er í boði Veffangarans

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Rikshaw

November 23rd, 2004 by admin

Hver man ekki eftir íslensku súpergrúppuni Rikshaw

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Funny shit

November 23rd, 2004 by admin

Hér má sjá top 10 lista yfir hallærislegustu Black Metal myndir allra tíma.

p.s það er nauðsynlegt að lesa skýringarnar við myndirnar til að fá safan úr húmornum

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Viðskipti

November 20th, 2004 by admin

Ég er forfallinn The Apprentice fíkill.

Eitt af því sem mér finnst tær snilld við þetta er að í hverjum þætti er svona klipp þar sem Trump lætur ómetanlegan gullmola falla varðandi viðskipti, að ógleymdum atriðum þar sem hann situr í eðalvagninum og skipar fólki valdmannslega fyrir í gegnum farsímann sinn.

Never loose your cool er einn af þessum óborganlegu gullmolum sem Ég hyggst nota mér til framdráttar í viðskiptalífinu, og er vafalaust einn af hornsteinunum í veldi herra Trump

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

Lights on the Highway

November 18th, 2004 by admin

Hljómsveitin Lights on the Highway gerði sér lítið fyrir og sigraði undankeppni Global Battle of the Bands nú í gærkveld
Það þýðir einfaldlega það að sveitin fer til Lundúna nú seinna í mánuðinum og þreytir keppni við að ég held 16 aðrar sveitir

Góður árangur fyrir sveit sem hefur ekki starfað saman nema fáeina mánuði!

Fyrir ykkur sem hafið ekki heyrt í umræddri hljómsveit þá má heyra lag með þeim Hér.
Til stóð að koma í spilun afar skemtilegu myndbandi við lagið en ekki veit ég til að það hafi enn verið spilað á öldum ljósvakans sem aldrei sefur en sagan segir að það sé vægast sagt mjög safaríkt.

Til Hamingju Drengir

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Tonight

November 17th, 2004 by admin

Í kveld verða gamlir pönkarar ungir á ný!
Meira um það seinna kannski

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Núllið

November 15th, 2004 by admin

Hver man ekki eftir Bankastræti núll?
það var jafnan kallað núllið og þangað fór fólk til að losa sig við veraldlegan úrgang.

Núllið sem hér um ræðir er þó ekki af kjetheimi og því síður við bankastrætið en ljóst er að þar losar ákveðinn maður sig við ýmsan huglægan úrgang sem gaman er að svamla um í.
Mér er sannur heiður að kynna til leiks Núllið á lýðnetinu!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries