October 31st, 2004 by admin
Við lifum í neysluþjóðfélagi!
Hvatning til neyslu áfengis og ekki síður ólöglegra fíkniefna er víða að finna bæði í ljósvakamiðlum og annarstaðar.
Öll vitum við að ungmenni sækja sér fyrirmyndir m.a í frægum tónlistarmönnum sem hylla margir hverjir neyslu ýmisa vímugjafa á beinan og óbeinan hátt í textum sínum og hátterni.
Vitanlega höfum við öll sömul að upplagi möguleikann á að velja og hafna þegar kemur að svona hlutum, en á móti kemur að unglingar eru sérstaklega áhrifagjarnir og ginnkeyptir fyrir spennandi hlutum sem þessum.
Það þarf varla að tíunda hér hvaða áhrif þessi neysla hefur svo á okkar ágæta samfélag en þau eru umtalsverð.
Eitt er þó sem hefur ekki farið hátt í því sem ég kýs að kalla ímyndardýrkun, og er það lífsstefna sem hefur hlotið nafngiftina Straight-Edge, og gengur aðallega út á það að lifa lífinu án allrar neyslu vímugjafa og lifa almennt heilbrigðu lífi.
Skilgreininguna á þessari lífsspeki má finna víða á veraldarvefnum og hef ég í forvitni minni verið að skoða mig um í þessum málum.
Eina skilgreininguna gerði ég tilraun til að snara yfir á ástkæra ylhýra og læt hana vaða hér, þó með fyrirvara um villur í þýðingu og málfræði.
Straight-edge er Lífsspeki sem miðar að allsgáðum líffstíl.Þetta þróaðist út frá Pönk / harðkjarnasenunum snemma á níunda áratugnum þegar hugtakið sjálft er talið hafa komið frá Ian Mackaye í laginu sem ber einmitt nafnið Straight Edge á þeim tíma er hann var söngvari í harðkjarnasveit er kallaði sig Minor Threat. Mackaye sniðgekk neikvæða tendensa pönksins og hóf til vegs og virðingar í staðinn þá einföldu lífsspeki að “ekki drekka/ekki reykja/ekki ríða”.
Á þeim 12 árum sem hafa liðið síðan Minor Threat leið undir lok hafa þessar einföldu lífsreglur umbreytt hugum ungmenna um víða veröld. Sífjölgandi dæmi eru um að Ungmenni illa haldinn af þjóðfélagslegum meinum ýmisskonar hafi innleitt þessar hugmyndir í líf sín með það að markmiði að bæta fyrst sig sjálf og síðan umhverfið sem þau lifa og hrærast í. Á meðan upphaflegu hugmyndirnar um Straight Edge innihéldu einungis það að hafna neyslu allra hugbreytandi efna og óábyrgri kynhegðun, hafa nútíma fylgismenn þessa lífsstíls innleitt í þennan hugsanagang breytt mataræði (Grænmetisfæði) og aukna meðvitund um umhverfis og stjórnmál.
Þess ber að geta að straight-edge óx upp úr pönk/harðkjarnasenunni svo tónlist spilar ekki aðalhlutverk í þessum málum.margir vilja meina að harðkjarna hljómsveitin The Teen Idles sem var uppi snemma á níunda áratugnum í Whasington og var fyrirrennari Minor Threat hafi verið fyrsta Straight-Edge hljómsveitin. Síðan þá hafa hundruðir ef ekki þúsundir sveita kennt sig við þessa lífsspeki. þær hljómsveitir sem voru hvað mest áberandi til að byrja með voru ásamt Minor Threat, SSD og Uniform Choice. um miðjan og seinni hluta níunda áratugarins náði senann miklum vexti og þá sérstaklega í New York borg.Sena þessi gat m.a af sér sveitirnar Gorilla Biscuits, Bold, Wide Awake og Youth of Today sem er af mörgum talinn vera áhrifamesta sveitin í þessum flokki tónlistar. Á meðan þær sveitir sem voru áberandi á þessu tímabili gerðu margt til að hefja Straight-Edge til vegs og virðingar þá lögðu þær einnig af mörkum umburðarleysi og andstöðu gegn öðru fólki. Stemningin á milli Straight-Edge fylgismanna og þeirra sem aðhylltust ekki þeirra stefnum urð á þessum tíma einsskonar “Straight-Edge vs Fólk sem drekkur reykir og/eða notar fíkniefni”. Mikið af fólki mislíkar Straight-Edge einmitt sökum slíks umburðarleysis.
Straight-Edge í dag eins ólíkt og það er því sem það var á níunda áratugnum býður enn upp á gildann og jákvæðann lífsstíl. Bönd eins og Strife, Mouthpiece, Earth Crisis og Snapcase halda áfram að stuðla að vexti og viðhalda þessu öllu saman. Á meðan andstæðingar halda því gjarnan fram að Straight-Edge fólk séu ekkert annað en enn ein aumkunarverð fórmarlömb tískubylgju, draga fáir í efa að þessi Lífsspeki er enn góð og gild. Hinn allsgáði lífsstíll hefur sett mark sitt á ólíklegustu ungmenni. Kannski hefur hugmyndafræðin enn meira gildi einmitt í dag þegar áherslan hefur þróast úr því að bæta okkur sjálf út í að breyta og bæta samfélag okkar og umhverfi.
Pönk eða ekki Pönk, Leður eða ekki Leður þá þykir mér þetta mjög áhugavert fyrirbæri og hvet alla sem áhuga hafa að kynna sér þetta nánar.
p.s taka ber fram að skáletraður texti er þýddur beint af www.straight-edge.com
Lifið Heil
Straight Edge Linkar
Straight-Edge.com
Straight-Edge.net
Dordingul/sXel
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
October 31st, 2004 by admin
Ég er gjörsamlega orðlaus yfir spillinguni sem nú er að koma upp á yfirborðið í íslenskum olíufélögum.
Mér er skapi næst að mælast til að þessir menn verði allir sem einn sprautaðir með banvænum skammti af eigin benzíni í vinstri hælinn eins og vinur minn og félagi leggur jafnan til að gert sé við óþokka sem bera enga virðingu fyrir samborgurum sínum.
JR Ewing var nú ekki svona slæmur var það?
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
October 29th, 2004 by admin
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að sjá hljómsveitina Klink spila á Grandrokk í gær í annað sinn.
Ég þekki nú ekki sveitina frá fyrri tíð en ljóst þykir að þetta er eitt af bestu hardcore böndum sem ég hef séð um dagana.
Flottar lagasmíðar og magnaður trommuleikur eru kannski það sem stendur helst uppúr en í heildina er þetta mjög skemmtilegur skítur og myndi ég jafnvel ganga svo langt að segja að þetta slái Harðkjarnasveitinni Írafár út!
Ég tók eitthvað af ljósmyndum sem ég hyggst föndra við og birta hér á vefnum innan skamms, en þangað til getiði étið það sem úti frýs.
Yfir og út
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
October 29th, 2004 by admin
Ég tel mig nú ekki vera mikin áhugamann um rapptónlist en Eminem á það til að gera hluti sem mér finnast eftirtektarverðir og er þetta eitt af því.
Hann er eitthvað svo skemmtilega gramur og uppreisnargjarn pilturinn sá arna.
Tékk it
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 28th, 2004 by admin
Ég er að pæla í að reyna að gera mitt besta til að safna portrait myndum af kynlegum kvistum sem kunna að þrífast í okkar annars ágætlega þjóðfélagi
Það má eiginlega segja að þetta sé sprottið út frá nýbúa pælingunni sem ég var með í sumar og koxaði svo eftirminnilega á, þannig að í staðinn fyrir að einblína á útlendinga hyggst ég reyna að taka portrait myndir af allskonar fólki í allskonar stéttum í þjóðfélaginu….
Tiltekt hefur farið fram í myndagalleríinu og hef ég safnað því sem mér finnst skást af svokölluðum headshots í eitt albúm sem má sjá Hér
Vonandi bætist svo jafnt og þétt við þetta á komandi misserum.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 25th, 2004 by admin
Mér hefur tekist að berja saman smá Airwaves albúm og má sjá það Hér
Lifið heil
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
October 23rd, 2004 by admin
Það er óhætt að segja að það sé búið að vera mikið um dýrðir í tengslum við Iceland Airwaves.
Það sem ég er nú þegar búinn að sjá er eftirfarandi.
Hood
Botnleðja
Úlpa
Ensími
Sahara Hotnights
Klink
Bang Gang
Tenderfoot
Dr.Spock
yourcodenameis:milo
Mínus
Lights on the Highway
Þetta er síður en svo búið því kvöldið í kvöld er eftir með öllum þeim sveitum sem þá fram koma
Ég ákvað að taka þann pólinn í hæðina að vera ekkert endilega að djöflast með myndavélina á öllum þessum tónleikum en þó eitthvað, og tel ég líklegast að ég birti eins og eitt albúm með því besta sem á sensorinn ratar á þessari stórgóðu hátíð Rokks og Friðar
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 21st, 2004 by admin
Ég veit ekki hvert ég ætlaði þegar þær fréttir bárust mér til eyrna að hljómsveitin Vonbrigði væri að fara að leika á tónleikum í Austurbæ í næsta mánuði.
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að sjá þá á tónleikum fyrir c.a 20 árum síðan í kvikmyndahúsinu á Ísafirði og var það á þeim tíma mjög merkileg upplifun, enda sveitin í miklu uppáhaldi.
Eitthvað eru upplýsingarnar á reiki samt með þessa uppákomu og lýsi ég því hér með eftir öllum hugsanlegum upplýsingum um þennan viðburð sem í mínum huga er sennilega stærra fyrirbæri en comeback Pixies manna svo eitthvað sé nefnt.
Þá er bara Purrkurinn eftir þá ættu menn að verða mettir af 80´s pönki í bili.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 20th, 2004 by admin
Ef þú átt eða ert að velta fyrir þér að fá þér iMac G5 skaltu staldra við og kynna þér Þetta áður en þú ferð eitthvað að færa kvikindið, því það er greinilega ekki sama hvernig það er gert.
Þessar gagnslausu upplýsingar eru í boði addihetja.com
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
October 19th, 2004 by admin
nú á dögunum fann ég enn eina skemmtilega ljósmyndasíðu á netinu.
Ég ákvað í því tilefni að skella inn á hana soldið af lítilsháttar endurunnum myndum sem þið sem hafið áhuga getið séð Hér.
Það má eiginlega segja að þetta séu mínar uppáhaldsmyndir, þ.e.a.s af mínum eigin verkum!
En tékkiði endilega á photo.net ef þið hafið ekki gert það nú þegar, fullt af mjög góðum ljósmyndurum þarna með verk sín til sýnis..
Posted in Uncategorized | 1 Comment »