September 29th, 2004 by admin
Ýmis teikn eru á lofti sem benda til þess að heljarinnar tiltekt fari nú fram á lýðnetinu hérna megin atlantshafsins.
Mig hefur alltaf langað að sækja heim internetdeild ríkislögreglustjóra.
Sé einhvern veginn alltaf fyrir mér miðaldra mann sitja í einu herbergi við IBM tölvu frá 1997 sem keyrir Win NT Doesnt-Workstation……..Seeeeennilega eitthvað aðeins meira advanced en efa þó að þeir séu með SGI súpertölvur með bíómyndastýrikerfum.
Er Tölvuglæpamaður í þínu hverfi?
Meira um þetta fljótt!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
September 27th, 2004 by admin
Gott fólk þá hefur breytingin átt sér stað.
Eins og sjá má er langur vegur frá að hér sé hægt að tala um eitthvað stórvirki í vefhönnun enda stóð það aldrei til.
Þónokkur einföldun hefur þó átt sér stað og er allt efni vefsins orðið aðgengilegt á einni síðu í stað þess sem áður var þá var tenglabox á annari síðu sem sjálfsagt enginn sá nokkurtíma
þetta virkar einfaldlega þannig að þumalnöglin hér til hliðar sér til þess að þú komist í myndagalleríið og með því að klikka á stafina sem stafa zeranico.com kemstu aftur á upphafssíðuna.
Gestabókin fékk að fjúka þar sem hún hefur lítið sem ekkert verið brúkuð langalengi ásamt því sem tenglarnir eins og þeir leggja sig fóru í sína hinstu sjóferð og hyggst ég hlaða inn nýjum og hugsanlega eitthvað af þeim sem fyrir voru aftur nú á næstu misserum…..
Eitthvað er þetta samt ekki eins og uppkastið var og vonandi að mér takist að laga það fyrir jól
Sem fyrr ber mér að þakka manninum er kýs að kalla sig promazin í netheimi fyrir aðstoð við að sulla kóða saman svo úr verði eitthvað sem kalla mætti vef…
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
September 22nd, 2004 by admin
Þessa stundina er ég er að reyna enn eina ferðina að berja saman útlitsbreytingu á þessum árans vef…
Einhvern veginn þoli ég ekki við að hafa sama útlit á þessu nema nokkra mánuði í senn, kannski af því ég kann ekki að búa til vefútlit?
Posted in Uncategorized | 8 Comments »
September 20th, 2004 by admin
Já gott fólk nýja 2falda skífan með Cave-aranum er kominn í hús og verður krufin til mergjar nú á næstu dögum.
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
September 18th, 2004 by admin
Félagi minn lét mér í té myndband með því alflottasta trommusólói sem ég hef á ævi minni séð og langar mig að deila því með ykkur lesendum mínum
Það sem gerir það kannski enn merkilegra er að pilturinn sem lemur húðirnar á þessu myndskeiði var einungis 12 ára gamall þegar það var tekið upp.
Eftir smá rannsóknarvinnu ala Lýðnetið fann ég út að pilturinn sem heitir Tony Royster Jr er í dag orðinn 19 vetra gamall og er vitanlega orðinn víðfrægur fyrir trommuleik sinn
Myndskeiðinu má niðurhala Hér
p.s það er bara gott á ykkur að linkurinn virkar ekki í M$ IE og ef reynt er að klikka á hann í þeim sóðavafra fáið þið skilaboð við hæfi
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
September 15th, 2004 by admin
Ég tók held ég bara flottustu myndir ferils míns sem LjósNyndari í gær…..
Einhver bið verður þó á að þær verði birtar hér en þó ekki löng!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
September 13th, 2004 by admin
Nú tel ég mig vera í hópi þeirra manna sem mætti segja að kalli ekki allt ömmu sína, en það má segja að skrattinn hafi hitt ömmu sína að máli nú um helgina þegar ég í sakleysi mínu horfði á kvikmyndina Ken Park
Myndin dregur ekkert undan og hefst strax handa við að dæla í þig hverjum viðbjóðnum á fætur öðrum strax frá fyrsta atriði.
Persónusköpun myndarinnar er þó með þeim hætti að ekki er laust við að maður fái ákveðna meðaumkun með allflestum ef ekki öllum persónum myndarinnar sem eru hver öðrum sjúkari.
Aðalsögupersónur myndarinnar eru eins og kannski margir vita unglingar, og fannst mér myndin sýna á sannfærandi hátt hvernig nánasta umhverfi hefur persónuskapandi áhrif á börn og unglinga í nútíma vestrænum samfélögum þó með undanteknginum sbr Tate sem virtist vera í góðu yfirlæti hjá ömmu sinni og afa, en þó var forsaga þess af hverju hann dvaldist þar en ekki hjá foreldrum sínum ekki látin koma fram.
Söguþráður eða plot fer ekki stórum í þessari mynd en samt sem áður náði hún að halda óskiptri athygli minni allt frá upphafi til endaloka.
Samt sem áður vil ég setja spurningarmerki við grófar kynlífssenur í kvikmynd sem þessari sem virðast ekki þjóna neinum tilgangi öðrum en að sjokkera áhorfandann, en sitt sýnist hverjum.
Þó verð ég að mæla með þessari mynd fyrir þá sem vilja eitthvað sem er með kjet á beinunum eins og góður vinur og félagi myndi kannski taka til orða.
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
September 12th, 2004 by admin
Smellti nokkrum myndum af hljómsveitinni Lights on the highway sem kemur til með að spila á Airwaves hátíðinni í næsta mánuði.
Ég fékk einnig tækifæri til að sjá og heyra þá spila á Grandrokk um daginn sem var hin ágætasta skemmtun, og mæli ég með þeim fyrir þá sem hafa gaman af því sem ég myndi kalla rólegu gáfumannarokki….
Allavega eru þessar myndir Hér ef einhver hefur áhuga, og tékkiði svo bara á þeim á Airwaves.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 9th, 2004 by admin
Ég er gríðarlega spenntur fyrir Iceland-Airwaves sem fyrirhuguð er í næsta mánuði.
Ef fer sem horfir mun ég gera stórum hluta hátíðarinnar skil í myndum sem verður gaman þar sem ég hef lítið myndað af tónleikum upp á síðkastið.
Þarna gefst mér tækifæri til að sjá fullt af hljómsveitum sem ég hef aldrei á ævinni séð sem er eitthvað sem ég hef einstakt gaman af.
Á að mæta?
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
September 7th, 2004 by admin
Oftast líður mér eins og ég sé að skrifa út í tómið þegar ég pára hér hverja vitleysuna á fætur annari.
Reyndar er þetta pár svosem tilgangslaust með öllu og kemur sjálfsagt seint til með að verða mér til nokkurs framdráttar.
Aftur á móti rambar hér inn ein og ein sála sem hrífst af myndunum mínum á einn eða annan hátt og er ekki frá því að ég verði alltaf hálf hissa.
Andlitslausir gestir sem koma hér jafnvel í skjóli nætur og skilja ekkert eftir sig nema eitt stig á teljara sem er jafn tilgangslaus og párið sem hér rennur gera það að verkum að ég nenni þessu.
Þakka ykkur öllum fyrir komuna og verði ykkur að góðu.
Posted in Uncategorized | 4 Comments »