Hugvekja.

August 28th, 2004 by admin

Það er kominn dagur.
Loftræstingin suðar.
Dagurinn úti er eins fjarlægur og hann var í gær.
Tom Waits raular Barcarolle eins og hann hafi aldrei gert annað.

Frá unga aldri hefur hausinn á mér langað til að verða frægur tónlistarmaður, það hljómar kannski hallærislega og vissulega nú þegar aldurinn hefur færst yfir mig hef ég gert mér það ljóst að hann er bara vitlaus þessi haus.
Að ganga niður laugaveginn á góðum degi vopnaður Uzi……… er ekki eitthvað sem maður gerir. eða hvað?
Er kannski kominn tími á byltingu á íslandi?
Er kominn tími til að við endurheimtum æru okkar úr höndum bankastofnana og stjórnsamra ráðamanna og tökum málin í okkar eigin hendur?

Vilt þú að bankinn þinn eigi þig með húð og hári?
Bjartur í sumarhúsum var vissulega skuldugur í upphafi búskaps en það var ekkert í líkingu við það sem hinn dæmigerði íslendingur er í dag.

Ég var eitt sinn spurður af ungum lækni þegar hann var að gera að sári mínu hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór.
Þetta fannst mér asnaleg spurning og kannski þá aðallega af því ég hafði barasta ekki hugmynd um hvað ég vildi gera við líf mitt

Nú er liðinn rúmur áratugur frá þessum atburði og hef ég sem betur fer gert mér ákveðnar hugmyndir hvað ég vill verða þegar og ef ég vex úr grónu grasi þó svo þær séu kannski ekki fullmótaðar

Rétt eins og Bjartur þrái ég frelsi og sjálfstæði ofar öllu.
Það í bland við hamingju og gleði ætti að duga til að halda í okkur öllum líftórunni.

I´ll have the veal
A lovely meal
That´s how I feel
May I use your skull for a bowl

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Ensími

August 27th, 2004 by admin

Kíkið á nýja vefinn hjá snillingunum í Ensími.
við fyrstu sýn virðist vera um flottan hljómsveitarvef að ræða og gladdi það mig sérstaklega að þeir skyldu sjá ástæðu til að prýða vef þennan að hluta með ljósmyndum héðan

slóðin er sem fyrr www.ensimi.is

Annars vil ég biðja fólk um að sýna stillingu í óhóflegri neyslu á brauðvörum nú um helgina þar sem sýnt er og sannað að slíkt svall hefur ömurleg áhrif á hægðirnar

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Linux smínux

August 24th, 2004 by admin

Linux er mjög kúl og allt það.

En nú hef ég mér til mikillar mæðu komist að því að það er ekki vegur að vinna myndirnar mínar af einhverju viti þar …..
Allavega ekki nema tileinka mér alveg splúnkunýjar og framandi aðferðir við slíka vinnslu.
Þar sem ég er í eðli mínu latari en andskotinn held ég að ég komi mér upp annari vél í photoshop vitleysu, eða hreinlega slátri Linux uppsetningunni minni sem ég er svo afar stoltur af :/

Já það er ekki tóm sæla að vera vitleysingur

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Mr. Reed

August 22nd, 2004 by admin

Tónleikar Lou Reed í laugardalshöll á föstudagskveld komu skemmtilega á óvart

Þvílíkt einvala lið hljóðfæraleikara hef ég vart séð um dagana.
Hinn hávaxni Tony Smith sem lék á trommur og hin nefprúða Jane Scarpantoni sem lék á eftirminnilegan hátt á forláta Selló stóðu þar uppúr að mínu mati.

Allt þetta rann fullkomlega saman við persónulegan og í senn nánast klaufalegan gítarleik Lou Reed (sem ég kunni vel að meta) og var ekki laust við að hann minnti mig á köflum á Neil nokkurn Young í gítarleik sínum.

Hápunktur tónleikana að mínu mati var flutningur sveitarinnar á laginu Venus in furs þar sem Jane tók allsvakalegt Sellósóló sem sló út öll gítarsóló sem ég hef orðið vitni af um dagana.
Stemmingin í salnum var með rólegasta móti og var ekki fjarri að hlustendur hefðu verið eins og dáleiddir af flutningi Lou og félaga.

Spurning hvort við fáum ekki að sjá Tom Waits og Neil Young áður en langt um líður?

Kiss the boot of shiny, shiny leather
Shiny leather in the dark
Tongue of thongs, the belt that does await you
Strike, dear mistress, and cure his heart

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Idol

August 19th, 2004 by admin

Pornstar Idol er einhver fjandans sjúkasti skítur sem ég hef á ævinni séð….

Hér má aftur á móti finna frumlegar aðferðir til að farga sér er vera skildi að lífið væri óbærilegt.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Lou Reed.

August 18th, 2004 by admin

Áætluð er för á tónleika meistara Lou Reed á næstkomandi föstudag í félagi við meistara mikinn og stórvin minn.
Ekki get ég þó sagt að ég sé beinlínis mikill aðdáandi Reed en þar sem miði bauðst á góðum prís og um talsvert merkilegan tónlistarmann er að ræða var ákveðið að slá til og fara.
Eiginlega finnst mér oftast mest gaman að sjá tónleika með listamönnum sem ég þekki lítið sem ekkert til….The element of surprice getur orðið ansi sterkt í tilvikum sem þeim.

Myndavélin verður því miður að öllum líkindum ekki með í för, en hún hefur lítið verið brúkuð að undanförnu og má vel vera að hún verði enn minna brúkuð í náinni framtíð…….

annars vantar mig kvenkyns módel til að sitja fyrir nakin ef þið vitið um einhverja slíka?:o

Á Fóninum: Uh Huh Her - PJ Harvey

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

What is the Matrix

August 17th, 2004 by admin

Tell me mister Anderson, what good is a computer if you are unable to think?

John Merrick says:
er windows bara heimur blekkinga?
promazin says:
windows er fyrir fávita
promazin says:
sem nenna ekki að hugsa

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Nature Boy.

August 16th, 2004 by admin

Fyrsta smáskífan af tvöfaldri skífu Nick Cave sem hefur hlotið nafnið Abattoir Blues / The Lyre of Orpheus hefur nú litið dagsins ljós.
Myndband hefur einnig verið barið saman við lagið og má það finna á vefslóðinni http://nickcaveandthebadseeds.com

Ég er ekki frá því að það sé að færast eilítil gleði í lagasmíðar Cave sem hingað til hefur verið þekktur fyrir frekar melancholic lagasmíðar svo ekki meira sé sagt.

Annað sem vakti athygli mína um daginn voru ummæli Black Francis um áhuga hans á að fá Tom gamla Waits til að pródúsera næstu skífu Pixies, ……..það væri magnaður fjandi ef úr yrði.

Þangað til ætla ég að verða mér úti um nýju PJ Harvey skífuna og smjatta á henni um sinn.

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Speki dagsins

August 16th, 2004 by admin

Spurðu ekki hvað herra Hlið getur gert fyrir þig.
Spurðu hvað þú getur gert til að koma honum fyrir kattarnef!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Berun

August 14th, 2004 by admin

skv frétt í DV í dag eru sumar konur betur til þess fallnar að fara úr að ofan en aðrar!
Gallinn er sá að þær konur sem skv þessum staðli eru verr til þess ára fallnar virðast frekar láta vaða og bera mjólkurkirtla sína á almanna færi.
Það sem ég er að velta fyrir mér er hvað það er sem gerir eina konu betur til þess fallna að fækka klæðum en einhverja aðra? ,hreyfihömlun hugsanlega?

Það hefur komið fyrir á góðviðrisdögum að ég hef fækkað fötum talsvert til þægindaauka fyrir sjálfan mig án þess að velta því neitt sérstaklega fyrir mér hvort ég per se sé eitthvað sérstaklega vel til þess fallinn, en ég er jú reyndar karldýr og gæti verið að staðlar sem þessir eigi ekki við í þeim tilfellum.

Er ekki með þessu stórlega vegið að þessum hluta kvendýra sem skv DV eru illa til þess fallnar að bera brjóst sín ef þeim sýnist svo?
Annars ef þessir staðlar eru einhverstaðar til á prenti þá óska ég hér með eftir þeim.

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries