Dauði!

July 25th, 2004 by admin

Já DAUÐI sagði ég ……
Það sökkar að hafa ekki aðgang að lýðnetinu:/

Blóm og kransar vel þegnir!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Tiltekt..

July 21st, 2004 by admin

Ég tók mig til og gerði allsherjar hreingerningu í galleríinu og henti eins og óður maður.
Það verður bara að segjast eins og er að það var fjandi mikið af drasli þarna …

Eitthvað af því sem fór var þó bitastætt og kann að rata fyrir sjónir gesta hérna skv öðrum flokkunaraðferðum sem ég er að melta með mér.
Einnig er von á uppfærslu á kerfinu sem þessi vefur keyrir á og kann það að hafa í för með sér einhverjar breytingar á flokkunarfyrirkomulagi á myndum

Mergurinn málsins er samt sem áður sá að það sem mér fannst mjög flott fyrir ári síðan finnst mér ekkert endilega flott í dag.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Að vera…

July 21st, 2004 by admin

Eða vera ekki…..Það er spurningin!

Undanfarið hef ég verið ósköp latur að færa hér til bókar eitthvað bitastætt .
Einnig hefur nýbúaserían ekki fengið verðskuldaða athygli mína og má næstum segja að hún hafi floppað all svakalega ….eða kannski ekki ég hef enn einhvern tíma til verksins…

Kannski maður fari að hefja sig til fyrra flugs í skrifum um allt og ekkert hér í þessu notalega horni mínu á lýðnetinu?
Það er allavega af nógu að taka ef út í það færi.

En djöfull held ég að Airwaves verði feitt í ár….hugsanlegt að maður komi til með að gera því einhversskonar skil í myndum og vitleysu þegar fram líða stundir

Yfir og Út

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

You Fail Me!

July 15th, 2004 by admin

Það er ekki á hverjum degi sem út eru gefnar plötur sem ég gæti hugsað mér að festa kaup á, en það vill svo til að það er von á hvorki meira né minna en 2 skífum nú á haustmánuðum sem ég held vart vatni yfir!

Þar ber fyrst að nefna tvöfalda breiðskífu með Nick Cave and the Bad Seeds sem ég myndi segja að teldist til stórtíðinda fyrir aðdáendur hans þar sem útgáfa hans hefur verið frekar stopul undanfarið en nú fullyrðir kappinn að hann sé kominn í gamla gírinn og lofar skífu á ári næstu árin eða svo …

Í hinn stað eru snillingarnir í harðkjarnasveitinni Converge einnig gefa út skífu sem ku bera nafnið You Fail Me nú í haust eða nánar tiltekið eftir 67 daga og 23 klst.

Það gladdi mig óneitanlega að sjá á heimasíðu þeirra lag eitt af þessari komandi skífu öllum til endurgjaldslausrar niðurhölunar sem hafa aðgang að lýðnetinu ….
Tékkaðu á laginu—> Hér ef þú hefur ekki gert það nú þegar….

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

The Reykjavík Grapevine

July 12th, 2004 by admin

Rakst á skemmtilegt rit í nytjavöruverslun hér í hverfinu sem ber heitið The Reykjavík Grapevine.
þessu hlýtur að vera beint að gestum er kunna að vera hér á ferðalagi þar sem þetta er ritað á Engilsaxnesku í stað okkar ástkæru Íslensku, en þarna er m.a stiklað á stóru í tónlistarlífi okkar Reykvíkinga bæði fyrr og nú….

Helst vakti þó athygli mína í nostalgíu minni að tekinn var púlsinn á nokkrum af hetjunum úr stórkvikmyndinni Rokk í Reykjavík og muna þá kannski sumir þeirra fífil sinn öllu fegurri þó aðrir vissulega blómstri sem sóley í haga einhverstaðar í öskjuhlíð tilverunnar.

Eitt datt mér þó í hug um dagana og það var að hvort ekki væri tími til kominn að gera Rokk í Reykjavík 2 að Ömmurískum sið.
Öll vitum við að allar góðar kvikmyndir eiga sinn sequal sbr Köngulóamaðurinn, Ofurmennið, Leðurblökumaðurinn og hvað þetta allt saman nú heitir.
Annars óttast ég að sú gróska og það sköpunarfrelsi sem var allsráðandi á þeim tíma sem Rokk í Reykjavík (The Original) var gerð eigi seint eða jafnvel aldrei eftir að endurtaka sig…en hvað veit maður svosem?

Er Pönkið virkilega dautt eins og The Reykjavík Grapevine heldur fram?

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Á fóninum

July 10th, 2004 by admin

Já mikið gladdi það hjarta mitt að endurvekja kynni mín við gömlu og góðu snillingana í Purrk Pillnikk
Einhvern veginn held ég að enginn íslensk hljómsveit hafi náð að heilla mig eins mikið og sveit þessi gerði á sínum tíma, nema ef vera skildi Vonbrigði…..

ég ætlaði aldrei

að vera vondur strákur

En það kemur alltaf

út þannig

að ég vildi ég gæti

stoppað

ekki nema smástund

fyrirgefðu…

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Svart og sykurlaust

July 5th, 2004 by admin

Það lítur út fyrir að aumingjarnir sem sáu sér leik á borði og hugðust græða ótæpilega á svartamarkaðsbraski með miða á Bandarísk/Dönsku stórsveitina Metallica hafi fallið fyrir eigin græðgi.
Í staðinn fyrir að þessir óprúttnu einstaklingar kæmu út í umtalsverðum hagnaði, fengu margir hverjir niðurgreidda miða á þessa títtnefndu samkomu.

Lifi Einstaklingsframtakið!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Maður er nefndur

July 2nd, 2004 by admin

Mér þykir alveg hreint með ólíkindum að það skuli vera til fólk eins og James Nachtwey

James þessi hefur í yfir 20 ár þvælst um heiminn og ljósmyndað Stríðsátök og hörmungar ýmiskonar.
Það eitt og sér væri sjálfsagt nógu merkilegt en í ofanálag virðist þarna vera um magnaðann karakter að ræða sem nálgast viðfangsefni sitt af ótrúlegri kostgæfni og virðingu.

Áhugasömum vinsamlegast bent á kvikmyndina War Photographer

Posted in Uncategorized | 1 Comment »