June 30th, 2004 by admin
Ranturinn er dáinn enn eina ferðina!
Hann lætur eftir sig ótal óskilgetna lesendur og fáeina fýlupúka sem getnir voru í tómum misskilningi og leiðindum.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja láta eitthvað af hendi rakna er bent á að styrkja andfemínistahreyfinguna Halim Heim
Óbein ritskoðun alnetsins heldur sínu striki og má segja að Rantur þessi hafi verið ráðinn af dögum af fólki sem kunni ekki að meta hvernig þessir menn sáu hið stóra samhengi.
Ég ætla ekki hér né annarstaðar að leggja mat á hvort þetta sé réttmæt eða göfug aftaka, þar sem ég hef ekki nema lítinn hluta staðreynda á milli handa, en sýnist mér að hörðustu andstæðingar þessa vefsvæðis kæri sig kollótta um staðreyndir málsins svo lengi sem þaggað er niður í þessari óþægilegu rödd sem mælir kannski bara sannleikann á óvæginn og hispurslausan hátt?
Vissulega leit út fyrir að þarna hefði verið gerð heiftarleg árás að mannorði ungrar konu, en enginn hefur svo ég viti til fært sönnur fyrir því að svo hafi í raun verið.
Stúlka þessi gæti allt eins verið hugarfóstur höfundarins, enda lýsingin dæmigerð fyrir allt of stóran hóp ungra kvenna á íslandi í dag.
Aftur á móti ef um nafngreinda stúlku sem birt er mynd af undir þessum formerkjum er að ræða getum við farið að tala um meiðyrði og aðför að mannorði, en Ranturinn eins og aðrir sakamenn skal vera saklaus uns sekt hans hefur verið sönnuð
Bara spurning hvort Ranturinn sá arna hefur ekki 9 líf?
p.s til upplýsinga fyrir þá sem ekki vita um hvað málið snýst klikkið Hér
Posted in Uncategorized | 7 Comments »
June 26th, 2004 by admin
I´m a person just like you
but I´ve got better things to do
Than sit around
and fuck my head
Hang out with the living dead
Snort white shit
Up my nose
Pass out
At the shows
I don´t even
Think about speed
That´s just something
I just don´t need
I´ve got the straight edge
I´m a person just like you
But I´ve got better things to do
Than sit around
And smoke dope
´Cause I konw that I can cope
Laugh at the thought
Of eating ludes
I laugh at the thought
Of sniffing glue
Always gonna keep in touch
Never want to use a crutch
I´ve got the straight edge
Svosem ekkert rosalegur texti en samt sem áður flottur boðskapur.
Aftur á móti ku þessi texti og þá væntanlega lagið við hann hafa markað upphaf að lífsstíl fjölda fólks víða um heim, sem er klárlega merkilegra en textinn sjálfur, en meira um það seinna!
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
June 23rd, 2004 by admin
“If your pictures arent good enough, you´re not close enough.”
Robert Capa
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 23rd, 2004 by admin
Já góðir hálsar það styttist óðum í að ég fari í sumarfrí:D
Ásamt því að slappa af og rúnta kannski eitthvað um landið hyggst ég taka til við að massa þessa nýbúaseríu sem hefur verið ýtt úr vör hér á vefnum.
Einnig hef ég hug á að pæla svolíltið í sXe eða Straight-Edge sem er eitthvað sem ég hef nýlega uppgötvað…
Það að ég hafi ekki heyrt um þessa snilld fyrr bendir annað hvort til þess að ég sé orðinn gamall eða bara ákaflega takmarkaður, nú ekki nema hreinlega hvoru tveggja sé…
Myndin við pistilinn hér að neðan fær að þreyta keppni í Blaðaljósnyndun á amerísk-sykursæta ljósmyndavefnum dpchallenge.com á næstu dögum undir titlinum
“Straight Edge” svona í anda harðkjarnapælinga minna og á ég von á mikið af hressandi athugasemdum í kjölfarið…….
Over and OuT
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 23rd, 2004 by admin
“Það er erfitt að spá.
Og þá sérstaklega um framtíðina!” - Storm P
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
June 18th, 2004 by admin
Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að vera viðstaddur tónleikana Masters of the Universe á sjálfan þjóðhátíðardaginn!
Þarna stigu á stokk margar af bestu rokksveitum okkar íslendinga ásamt því sem hljómsveitir annnarstaðar úr heiminum léku á alls oddi
Sennilegast bar þar hæst sveitin Shai Hulud sem nú er á sínu síðasta tónleikaferðalagi áður en hljómsveitin leggur upp laupana
Óhætt er að segja að þessi konsert hafi verið í alla staði mjög vel heppnaður og var ekki að sjá annað en að áhorfendur hafi skemmt sér konunglega
Reyndar á ég erfitt meða að skilja af hverju svona samkunda er eins illa sótt eins og raun bar vitni, kannski fólk haldi að ef að miðinn kostar ekki 4-7 þúsund ríkisdali þá sé ekkert í þetta varið?
Ég hef ekki sagt mitt síðasta hvað þessa tónleika varðar og má t.d eiga von á talsvert af ljósmyndum sem ég tók við þetta skemmtilega tækifæri
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 14th, 2004 by admin
Ég lýsi hér með yfir opinberri andúð á fótboltageðveikinni sem nú ríður sem aldrei fyrr yfir íslenskt atvinnulíf með ófyrirsjáanlegum afleiðingum!
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
June 11th, 2004 by admin
Ok hér er pæling sem ég hef aldrei held ég haft almennilega á hreinu.
Þeir sem hafa farið á rokk tónleika í harðari kantinum hafa væntanlega séð áheyrendur lyfta höndum í fögnuði og mynda þá sérstaka bendingu þar sem vísifingur og litli fingur vísa fram á meðan baugfingur og langatöng eru krepptir inn í lófa!
En spurningin er veit einhver hvað þetta þýðir ef þetta þýðir þá eitthvað?
Einhvertíma heyrði ég að fólk væri með þessu að tákna hornin á sjálfum myrkrahöfðingjanum og væri þetta því andstætt því sem kristið gæti kallast, kannski í takt við tónlistina sem þetta fólk hlustaði á á þeim tíma, en það sem gerði útslagið með að ég sé að röfla um þetta hérna er að sjá skjáturnar í stelpnahljómsveitinni Nylon flagga Fingramáli þessu og það á heimasíðu sinni.
Óska ég því hér með eftir haldbærri merkingu á þessari bendingu eða hvað þetta nú kallast ….
p.s myndin er fengin að láni af heimasíðu Nylon
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
June 7th, 2004 by admin
Ég giska á að það verði farið að keppa í gervifegurð hér á Íslandi fyrr en seinna!
Ég sé fyrir mér að veitt verði aukaverðlaun í nokkrum flokkum s.s Flottustu Brjóstin, Gervilegasta Nefið osfrv.
Skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum gripasýningum sem hingað til hafa verið látnar nægja.
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
June 5th, 2004 by admin
Ljósmyndaseríu sumarsins Iceland - International var sparkað í gang í dag með miklum tilþrifum.
Einhver skaut á að ég myndi einungis ná 5 þjóðlöndum en ég náði 4 í dag all auðveldlega svo ég held svei mér þá að 20 væri ekki galið að reyna að stefna að.
Albúmið er komið á síðuna og fyrstu myndirnar má sjá þar eða —> Hér
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »