May 29th, 2004 by admin
Já gott fólk yfirstjórn zeranico.com hefur komist að samkomulagi varðandi hver myndasería sumarsins verður!
Pælingin er að taka portrait myndir af svokölluðum nýbúum sem hér lifa og starfa og safna þeim saman í skemmtilega seríu.
Pælingin er að sjá hvað maður nær mörgum þjóðlöndum í þessa seríu!
Skjótiði í kommentakerfinu á tölu og sá sem kemst næst endanlegri tölu fær dagsferð á hlemm undir leiðsögn landsþekkts róna að launum.
Tímamörkin sem ég ætla að gefa mér til verksins verða rúm eða u.þ.b 3 mánuðir þar sem ég hef mikilvægum störfum að sinna öðrum en gæluverkum sem þessum
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 6 Comments »
May 29th, 2004 by admin
Ég hef í kjölfar viðamikilla rannsókna komist að þeirri merku niðurstöðu að það sé vænlegt til árangurs að keyra á löglegum hraða um götur borgarinnar.
Einnig er talið nokkuð líklegt að notkun á öryggisbeltum borgi sig þegar fram í sækir, en þó liggja ekki fullnægjandi gögn fyrir í þeim málum enn sem komið er!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
May 26th, 2004 by admin
Ótrúlegt en satt þá fékk Ég fyrir hönd zeranico.com leyfi til ljósmyndunar á tónleikum Pixies nú fyrr í kvöld!
Fyrir það kann ég aðstandendum Mr Destiny,
a.k.a Hr Örlyg þúsund og eina þökk!
Þetta mun vera frumraun mín í stórtónleikaljósmyndun og dreg ég ekkert undan þegar ég segi að þetta hafi verið magnað frá bæði ljósmyndunar og tónlistarlegu sjónarmiði.
Þetta gamla fólk hefur augljóslega engu gleymt hvað tónlistarflutning snertir, og mátti heyra skrílinn syngja með hverjum slagaranum á fætur öðrum.
Þó svo ég hafi aldrei verið almennilegur Pixies fan hér á árum áður þegar félagar mínir reyndu hvað þeir gátu að troða þessu ofan í vit mín þá verð ég að viðurkenna að þetta er eitthvað það skemmtilegasta live performance sem ég hef á ævi minni séð.
Heyr Heyr myndirnar eru Hér
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
May 25th, 2004 by admin
já gott fólk ég ætla að bregða undir mig betri fætinum og fara að sjá meistarana í Pixies í kveld með spússu minni.
Frekari tíðinda af þeim stórtónleikum er að vænta þegar líða tekur á vikuna!
Einnig ber að geta þess að eitthvað af myndum af ferðalagi mínu til æskustöðva minna má sjá Hér og má allt eins eiga von á að við það bætist með tíð og tíma!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
May 25th, 2004 by admin
Alltaf gaman að finna flottar ljósmyndir og ekki verra ef þær eru af íslensku bergi brotnar.
Ég held ég geti með sanni sagt að Börkur Sigþórsson sé að gera eitthvað það flottasta sjitt sem ég hef séð lengi.
Ég finn óneitanlega til smæðar minnar er ég fletti í gegnum hvert meistaraverkið á fætur öðru á heimasvæði hans
Svona myndir langar mig að taka þegar ég verð stór…
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
May 25th, 2004 by admin
Í öllu tónleika haferíinu sem ríður yfir landann nú um þessar mundir hef ég lítið gert af því að heimsækja tónleika….
Þó er áhugi fyrir hendi að mynda eitthvað af þeim stórtónleikum sem framundan eru, en slíkt er ekki í boði fyrir LjósNyndara á eigin vegum ….
Óneitanlega hefur frítíminn farið heldur minnkandi á þessum síðustu og verstu tímum en þó verð ég að játa að líkaminn er farinn að kalla á meira ROKK…
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
May 20th, 2004 by admin
Í dag fagna kristnir menn uppstigningu freslara vor, og mæta ekki til vinnu af þeim sökum.
Ég veit eigi hversu hákristinn ég sjálfur er en ég fagna því innilega að fá frí frá daglegu amstri og geta velt mér um í sjálfshyggju minni allt frá morgni og fram á kvöld.
En ansi þykir mér merkilegt að frelsaranum hafi nægt einn dagur í þetta ferðalag sitt frá mannheimum og alla leið til ríkis þess er kennt er við himininn.
Mér finndist trúlegra að hann hafi tekið a.m.k viku í þetta ferðalag sitt.
Prestastéttinni hefur sjálfsagt þótt nóg um að gefa skrílnum frí í einn dag í þessu tilefni , og því sitjum við uppi með að fá bara frí í þennan eina dag í staðinn fyrir viku?
Hvað finnst þér lesandi góður?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
May 18th, 2004 by admin
Líklegt þykir að þrjótarnir sem rændu okkur félagana um daginn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum séu fundnir.
Íslenskt tónlistarlíf getur því tekið gleði sína á ný og má eiga von á fyrstu plötu sveitarinnar fyrir árslok 2015.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
May 14th, 2004 by admin
Mig langar að gera eitthvað svona mynda-pródjekt ….
Eitthvað sem heillar mig mest í svona seríum ef svo má kalla væri eitthvað í líkingu við www.abandoned-places.com.
Einnig má nefna í þessu samhengi Spessa nokkurn sem tók sig til og myndaði flestar ef ekki allar benzínstöðvar á landinu og gaf út í bók….
100 sjálfsmyndir á 100 dögum hjá herra Árna er sniðugt pródjekt líka og sjálfsagt mætti endalaust telja upp sniðugar pælingar sem menn hafa verið að mynda í gegnum tíðina….
Eina sem mér hefur komið til hugar er að mynda allar kirkjur á íslandi, nú eða jafnvel alla kirkjugarða, en samt ekkert sem heillar mig það mikið að ég nenni því ….
Vonum að hausinn á mér framreiði eitthvað sniðugt nú í sumar ……
p.s myndin við þennan texta er eign www.abandoned-places.com
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
May 12th, 2004 by admin
Ég er að spá í hvort ég eigi að hringja í blaðasnápa Séð og Heyrt og fá þá til að koma og mynda okkur félagana í hljómsveitinni, tómhenta og sorgbitna í húsnæðinu þar sem við vorum rændir.
Í niðurlagi myndi vera birt reikningsnúmer sveitarinnar þar sem landsmenn gætu lagt sitt af mörkum til að hljómsveitin megi starfa áfram.
Nú þegar hafa verið birt tíðindi af þessu innbroti á síðum sorpritsins DV svo sveitin hefur í það minnsta hlotið opinberlega umfjöllun án þess að hafa svo mikið sem leikið á einum konsert ……
Fyrirsögnin var minnir mig Hljómsveit á Hrakhólum svo kannski liggur beinast við að skýra sveitina Hrákhóll?
Lifi Lágkúran
Posted in Uncategorized | 3 Comments »