Gleði…

March 31st, 2004 by admin

Það gladdi mig óneitanlega að Mínus skildu loksins eftir langa bið flytja lag af Jesus Christ Bobby á tónleikum, og ekki var það lag af verri endanum heldur Chimera Mutherfuckers…..

Gott framtak hjá piltunum að bjóða æsku borgarinnar til Rokkmessu.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Mánudagur til mæðu!

March 29th, 2004 by admin

Ef jesú væri á lífi ætli hann myndi bölva því að þurfa að lækna sjúka á mánudögum, rétt eins og ég bölva því að þurfa að framkvæma skurðaðgerðir á helsjúkum Windows einmenningstölvum?

Posted in Uncategorized | 6 Comments »

Vafrar!

March 27th, 2004 by admin

Netvafrar eru eitthvað sem fólk notar talsvert í rápi sínum um alnetið.

Flestir notendur nota bara það sem hendi er næst og ber þar kannski fyrst að nefna Internet Explorer frá vinum okkar hjá Microsoft.
Það liggur beinast við að nota þann vafra þar sem hann er hluti af stýrikerfinu og þarf notandinn því ekki að velja sér vafra við hæfi ef t.d tekinn er í notkun ný tölva.

Það sem kannski fæstir vita er að það eru til ógrynni af vöfrum sem eru fyllilega samkeppnishæfir við þennan Ríkisvafra þeirra M$ manna, og vilja sumir ganga svo langt að telja að Internet Explorer sé einna sístur af þeim vöfrum sem í boði eru

Sjálfur þekki ég ekki mikið til annara vafra en hef þó nýlega tekið í notkun vafra sem kallast Firefox og verð ég að segja að hann hefur marga kosti umfram M$ vafrann sem ég kann að meta í notkun minni í alnetsrápi
Sem dæmi má nefna innbyggðan popup stoppara sem er mikið þarfaþing nú á dögum, ásamt því að geta stillt í honum ákveðna möppu sem allt niðurhal fer í.
Þetta eru hlutir sem IE hefur ekki!

Í ljósi þess að vafri þessi er í útgáfu 0.8 á meðan IE er í útgáfu 6.0.? tel ég að þeir Mozilla menn séu nú skrefinu á undan í þessum málum

Check it out right HERE

Posted in Uncategorized | 7 Comments »

Glæpur og Refsing!

March 27th, 2004 by admin

Into the mercy seat I climb
My head is shaved, my head is wired
And like a moth that tries
To enter the bright eye
I go shuffling out of life
Just to hide in death awhile
And anyway I never lied.

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Pixies

March 24th, 2004 by admin

Heyrst hefur að Pennin á akureyri eigi ennþá einhverja miða á Pixies!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Skottulæknir!

March 24th, 2004 by admin

Miðað við upplýsingar sem liggja fyrir þykir ljóst að næsta verkefni Rússnesku Mafíunnar þyrfti að vera að flytja inn nothæfan skottulækni sem gæti komið mönnum með fulla vömb af fíkniefnum sem skila sér ekki til hjálpar!
Einnig er tilfallandi að þurfi að gera að mönnum með skotsár og aðra áverka í harðnandi heimi eiturs og glæpa.

Einnig væri mögulegt að þjálfa upp eitthvað af þeim skottulæknum sem hér eru fyrir og hafa t.d verið reknir fyrir vanhæfni eða eitthvað álíka af íslenskum sjúkrastofnunum, en það er klárt að þetta er eitthvað sem þarft er að skoða!

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Forseti Íslands!

March 23rd, 2004 by admin

Nú styttist óðum í forsetakosningar!

Samframbjóðendur Ólafs Ragnars Grímssonar eru ekki af verri endanum og hafa langa sögu afreksverka á bakvið sig.

Fyrst ber að nefna Ástþór Magnússon sem hefur lengi látið til sín taka á þjóðlegum vettvangi.
Hver man ekki eftir Tómatsósuatriðinu í hæstarétti og fíflagangnum öllum tengdan því máli svo ég tali ekki um annað.
Mín kenning er sú að Ástþór sé ekki annað en paranoid schizophrenia sjúklingur sem ætti að koma sem allra fyrst undir læknishendur fremur en að bjóða fram sem forsetaefni þjóðarinnar

Snorri nokkur Ásmundsson, listamaður með meiru hefur gert hvað sem hann getur til að vekja á sér athygli og meðal annars seldi hann um tíma syndaaflátsbréf í Kringlunni okkar allra við mikinn fögnuð, ásamt því að bregða sér í hlutverk Jesú Krists án þess að blikna svo mikið sem augnablik

Ég ætla mér ekki að gera lítið úr listamannshæfileikum þessa myndarlega manns en er samt sem áður þeirrar skoðunar að menn af hans sauðahúsi sæmi sér betur við að sarga af sér líkamsparta í bland við sjúklega listsköpun en að bjóða sig fram í æðsta embætti okkar farsæla samfélags

Einhver kom með þá hugmynd að Ríkir menn í þjóðfélaginu myndu púkka saman og greiða þessum mönnum fyrir að hætta nú þessum fíflaskap og spara okkur öllum heilmikla peninga og fyrirhöfn, á meðan annar gekk enn lengra og hélt því beinlínis fram að líflátsnefnd mafíunnar hefði sérstakan hug á því að ráða þessa blesa af dögum

Hvað satt er í þessum ummælum skal ég ekki segja til um en þó verð ég að vera því sammála að einhver skítalykt sé af þessu kosningarugli öllu saman

Lifi Lýðræðið

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Skítur…

March 23rd, 2004 by admin

Ég hef komist að þeirri stórmerkilegu niðurstöðu að eftir því sem ég tek meira af ljósmyndum þá geri ég mér betur ljóst hversu lítið í raun ég kann!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

pluto.is býður til veislu

March 21st, 2004 by admin

Næstkomandi miðvikudagskveld verður opið hús í höfuðstöðvum pluto.is

Í þetta skipti verður svokallað Bíókvöld þar sem heimabíókerfi á heimsmælikvarða verða til sýnis og áheyrnar.
Ég held að ég sé ekkert að ýkja þegar ég segi að þarna séu sennilega á ferð með bestu heimabíókerfum sem fyrirfinnast hér á landi og Skjávarpinn sem notaður er til að koma myndinni þolanlega til skila er eitthvað sem við meðalmennirnir getum aðeins látið okkur dreyma um

Þarna gefst fólki tækifæri til að labba inn af götunni og kíkja á flott tæki og umfram allt Heyra Hljómgæði sem líða seint úr minni

Nánari upplýsingar um tímasetningu og staðsetningu má finna Hér

Sjáumst

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

5ta Herdeildin

March 21st, 2004 by admin

Kántrí-Pönk sveitin 5ta Herdeildin Hélt útgáfutónleika sína í gærkveld á Grandrokk
Þar lék sveitin ásamt gestum lög af nýútkominni breiðskífu sem ber nafnið “Áður óútgefið efni” við mikinn fögnuð viðstaddra

Ég hafði á því orð að söngvarinn væri nú full mikið að stæla Megas þegar mér var tjáð að hann væri sonur meistarans…sjálfsagt verður honum fyrirgefið að syngja eins og hann fyrst hann er svona mikið skyldur honum, En tónlistin var áhugaverð og væri gaman að fá þennan disk til hlustunar einhvertíma við gott tækifæri

Fáeinar myndir af viðburðinum má sjá Hér og einnig má finna nokkur hljóðdæmi á heimasíðu sveitarinnar Hér

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries