February 28th, 2004 by admin
Margir segja að ísland sé eitt ritskoðaðasta land í heimi þegar kemur að tónlist.
Út frá því fór ég aðeins að pæla.
Norðurljós á og rekur allar stærstu útvarps miðla í landinu!
Einnig á það og rekur einu starfandi sjónvarpsstöðina sem sérhæfir sig í flutning á tónlist og tengdu efni
Skífan er sennilega stærsti aðilinn sem sér um útgáfu og sölu á tónlist á Íslandi, og að sjálfsögðu er Skífan í eigu Norðurljósa.
Bissness er alltaf Bissness kunna einhverjir að segja, og mikilvægur þáttur í viðskiptum er að lágmarka áhættu varðandi fjárfestingar.
Tónlist er í dag eins og hver önnur neysluvara, og eins og í dæmigerðu neysluþjóðfélagi kaupa neytendur það sem þeim er sagt að kaupa.
Þar með væru Skífumenn að taka lágmarksáhættu með að gefa t.d út Jólaplötuna Feðgajól með þeim Björgvin Halldórsyni og Hrafni Björgvinsyni fyrir næstu Jól í ljósi þess að það er tryggð spilun og mötun á viðbjóðnum
Nennir fólk ekki að leita lengra en á FM eða Xið eftir tónlist á diskinn sinn?
Vill fólk láta bissness menn ákveða hvað er söluhæft og hvað ekki í þessum málum svo dæmi sé tekið?
Vissulega er fullt af fólki sem vill einmitt það og verð ég að segja að mér þykir það miður
Er þetta allt frelsið sem nútímaþjóðfélag hefur upp á að bjóða?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 27th, 2004 by admin
Breiðskífa Andlát er kominn til landsins fyrir þá sem hafa á því áhuga!
Ég er svo langt á eftir í Harðkjarnamenninguni að ég var að sjá þessa pilta spila Live í fyrsta skipti í gær og verð ég að játa að ég varð hrifinn!
Professional spilamennska og þéttleiki sem ekki verður með orðum lýst er ekki eitthvað sem maður sér á degi hverjum hjá Íslenskum rokksveitum, og verð ég að setja Andlát á stall með Bestu rokksveitum klakans.
Hef ég það frá Meistara PönkHjúkku að piltarnir hafi tekið skífuna upp sjálfir með einstaklega góðum árangri og tel ég bara nokkuð miklar líkur til þess að fé verði veitt til kaupa á þessari skífu, og það hugsanlega á árinu
Allavega er samvisku minni illa við að ólöglegar afritanir séu gerðar af tónlist af þessu kalíber
Frekar upplýsingar og tóndæmi má finna á heimasíðu hljómsveitarinnar Hér
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
February 26th, 2004 by admin
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
February 26th, 2004 by admin
Heimsfrægir tónlistarmenn streyma til Íslands í löngum bunum, Ég man ekki eftir að það hafi verið svo mikið af stórkonsertum á einu ári áður, og er ég nú gamall!
Ef maður bara hefði nú tækifæri til að sjá þetta allt saman, já svo ég tali nú ekki um að mynda.
Kanarnir á DPChallenge eru að fucking tapa sér í umræðum um giftingar samkynhneigðra og þar fram eftir götunum, Prakkarann í mér langar að senda mynd af Brennandi fána bandaríkjana í Fire Challenge sem er nú í gangi og hver veit nema ég geri einmitt það:o
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
February 25th, 2004 by admin
17) Og með þessum hætti sá ég hestana í sýninni og þá sem á þeim sátu: Þeir höfðu eldrauðar, svartbláar og brennisteinsgular brynjur, og höfuð hestanna voru eins og höfuð ljóna. Af munnum þeirra gekk út eldur, reykur og brennisteinn
Þarna mun vera átt við snillingana hér í bannernum að ofan!
Svona er maður háandlegur
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
February 24th, 2004 by admin
Vinur minn sem er er einkar vel máli farinn lét þau orð falla að eitthvað væri “Fýsilegur Kostur“!
Í framhaldi af því fór ég að velta fyrir mér hvaðan þetta orðasamband væri komið.
Að vera eins og Fýsa?
ef svo er hvað er þá fýsa?
er það Fýsa eða Físa?
orðið Físa/Fýsa er stundum notað yfir kvenmannskynfæri en leyfi ég mér að efast um að slík líffæri komi við sögu í þessu sambandi.
Líklegast þykir mér að að orðið Fýsa þýði að langa, en leifar af kveikjaragasi og öðrum eins ósóma í heilabörki mínum gera það að verkum að mér er um megn að skilja þetta til þrautar
En mikið er Íslenska fjölbreytt og skemmtilegt tungumál
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
February 23rd, 2004 by admin
Eins og Sjá má hefur bannerinn á síðunni verið færður í stílinn, hvort sem það er af hinu betra eða verra.
Það var meðal annars gert til þæginda fyrir þá sem nota upplausn 1024×768 við að fletta myndum í galleríinu
Einnig setti ég að gamni í albúm þær myndir sem ég hef fært í stílinn fyrir fréttamennsku zeranico.com og má sjá þær —-> Hér
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
February 22nd, 2004 by admin
“við erum í alvöru meðvituð um það hvað myndi eiga sér stað ef að ríkistjórnin hyrfi á einum degi; það er þessvegna sem við leggjum okkur fram um að fá fólk til að hugsa um hvaða merkingu frelsi og persónuleg ábyrgð hafa, og hvað muni verða um þetta tvennt ef að hin fíníseraða en stöðuga óreiða ríkistjórnarþægðar heldur áfram út í hið óendanlega”
Ríkisstjórnarþægð er frábært orð!
Þetta er fengið að láni úr dreifibréfi www.andspyrna.net!
Anarkismi er áhugavert fyrirbrigði
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
February 22nd, 2004 by admin
Allir þekkja sjálfsagt sjónvarpsþáttinn Svínasúpan!
Einn karakter í þeim þáttum hefur vakið athygli mína meira en annað sem þar er á borð borið, og er það slímugi bloggarinn sem kallar sig að mig minnir Drekinn
Einhvernveginn hefur Drekinn veitt mér nýja sýn á svokallaða bloggara sem þeysast um alnetið á ógnarhraða nútímans, og eru allir jafn sniðugir eða hallærislegir og dæmi hver og einn fyrir sig!
Ekki er ég allsendis saklaus af hjákátlegum skrifum um lágkúrulegt framferði mitt hvort sem er í kjötheimum eða hér á alnetinu
Vissulega er nú samt talsvert gaman að þessari vitleysu oft á tíðum og ekkert nema gott um þetta að segja.
Lifi Lágkúran!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
February 20th, 2004 by admin
Eins og Góður vinur minn og mikill meistari segir gjarnan
Haldið ykkar Hestum í Skefjum!!!
Posted in Uncategorized | 2 Comments »