Seld
Fallegasta ferðavél í heimi hefur verið seld í fjáröflun til linsukaupa:/
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Fallegasta ferðavél í heimi hefur verið seld í fjáröflun til linsukaupa:/
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Canon has done it again!
EOS 1D Mark II er væntanleg með öllum þeim kræsingum sem vænta mátti!
8,2 megapixlar 8,5 rammar á sekúndu ofl ofl sem fræðast má um Hér
Canon á diskinn minn
Posted in Uncategorized | 5 Comments »
Já nú er hægt að sækja námskeið í cannabis ræktun hér á landi!
þetta er eitthvað sem zeranico telur bragabót og nauðsynlegt fyrir alla harða hasshausa að geta ræktað sitt eigið gras!
Hver man ekki eftir meistara Mortens í Rokk í Reykjavík ekki alls fyrir löngu þar sem hann lýsti því brosandi yfir að hann ræktaði sitt eigið gras og reykti?
Aðeins einn galli er á gjöf Njarðar og hann er sá að kennslan er ekki verkleg!
Einnig má setja út á verðið en það er talsvert í hærri kantinum fyrir Tekjulitla hasshausa
zeranico telur að samkeppni gæti hugsanlega verið yfirvofandi á námskeiðshaldi sem þessu og hefur heyrst að Björgúlfsfeðgar í samstarfi við Jón Ásgeir hyggist opna miðstöð Eiturpésa hér í bæ, þar sem ýmisleg námskeið verða haldinn ásamt því að vera miðstöð fyrir íslenskt fíkniefnaáhugafólk
Þar ber kannski helst að nefna Ópíum Ræktun í íslenskum gróðurhúsum, Námskeið í að Búa til Krakk í örbylgjuofn svo eitthvað sé nefnt
Einnig munu sömu aðilar standa fyrir ráðstefnunni Kaupum Íslensk Fíkniefni sem haldinn verður á Kaffi austurstræti um næstu helgi og vil ég eindregið benda mönnum á að panta sæti tímanlega því eins og allir vita þá komast færri að en vilja á þessum rómaða stað í hjarta borgarinnar
Kaupum Íslenskt
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Já það er ekki tekið út með sældinni að vera kettlingur svo mikið er víst
Til að gera langa sögu stutta þá villtist einn kettlingur inn í þvottavélina og var þar af leiðandi þveginn í ca 10-15 mín á 30 gráðum
Kattargreyið var að vonum illa leikið eftir þessa útreið, en svei mér ef hann er ekki hvítari en hinir hvítu kettirnir fyrir vikið
Spakmæli dagsins er því eitthvað á þessa leið
Eigi er köttur Hvítur nema þveginn sé
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
Maður einn sem hafði gengið lengi til Geðlæknis hér í borg, var orðinn úrkula vonar að ná einhverju sem kallast gæti andlegt heilbrigði!
Hann gekk því sem oftar til síns manns í von um haldbæra lausn við sínu flókna meini sem lýsti sér meðal annars í óhóflegri neyslu áfengis og annara mislöglegra vímugjafa
Læknirinn aftur á móti var sennilegast orðinn álíka vonlítill um batahorfur þessa manns og lét þessi fleygu orð falla
Það er óbrigðult ráð að hengja sig
svo mörg voru þau orð
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Já það er nokkuð ljóst að fjandinn ræður ríkjum hér á landi, og þá sérstaklega hjá snillingunum hjá OgVodafone
Enn frekari bið verður á alnetstengingu zeranico holdings og er ekki laust við að stjórnendur fyrirtækisins séu farnir að ókyrrast verulega
Af Ljósnyndum er það að frétta að Ensími albúmið hefur eitthvað verið uppfært og einnig má sjá í Galleríinu nýjar myndir sem voru teknar nú í Dag af Death Metal bandinu Withered á ónefndum stað hér á höfuðborgarsvæðinu
vissuði að Ólafur Ragnar er kominn með bloggsíðu?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
zeranico mætti í félagi misgóðra manna á sóðabúlluna Grandrokk seint í gærkveld til að sjá meistarana í Ensími
Tilgangurinn var að lyfta sér aðeins upp og mynda kannski smávegis!
það síðarnefnda tókst ekki eins vel og það fyrra, en kann að vera að eitthvað verði hægt að moða úr þessu
Grandrokk mættu samt alveg spá í að fá sér einhverja flottari lýsingu á sviðið mér og öðrum til mikillar gleði….
Einnig væri kjörið fyrir zeranico holdings að festa fé í Gleiðari Linsu framan á kvikindið er við Canon er kennt
Örfáar myndir villtust inn í Galleríið svona til málamynda og bæti ég fleirrum við um helgina ef OgVodafone þóknast að veita mér aðgang að alnetinu í þægindum míns eigin heimilis!
Einnig væri ráð að gera eitthvað við þennan ógeðslega Banner þarna uppi:/
En þangað til, Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
Ég er ekki frá því að Sultukrukkan hafi farið öfugu megin fram úr eldhússkápnum nú í morgunsárið, og ruglað þar með alla framvindu illa ígulkersins sem dvelur nú á botni miðjarðarhafs í útlegð eftir harða meðferð á Kóngulóavefum austan við kópasker!
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
Um komandi helgi er ætlunin að mynda Withered skreytta dauðagrímum einhverstaðar úti við…..
mér finnst ekki til of mikils ætlast að veðrið verði skaplegt til myndatöku!
Einnig eru uppi hugmyndir um að kvikmyndatökumaður frá Broadbandjes.us enterprizes verði á staðnum og documenti þennan fíflaskap í hreyfimyndum
svo er ég að spá hvort ég eigi að fá mér Svona
Posted in Uncategorized | 1 Comment »