Hér á eftir fer saga sem rak á fjörur mínar rétt í þessu, og Ég hreinlega stóðst ekki mátið að deila henni með ykkur
Sagan af ,,skets” sem aldrei fór í loftið á lagmenning.is
Rökkvi segir við nördavin sinn, hey, ég er með brilliant hugmynd af mjög fyndnum skets sem á áreiðanlega eftir að koma mér í sjónvarpið. ,,Nú??” segir nördi, ,,hvað er það eiginlega”?
Ég ætla að fara og dissa lögreglustjórann svakalega.
,,ERTU GENGINN AF GÖFLUNUM”, hrópar þá nördi.
Slakaðu á, ég er nú ekki talinn óforskammaðasti bloggari landsins út af engu, það er enginn geggjaðari en ég.
,,Mér líst ekkert á þetta”, segir þá nördi. ,,Hvað ætlarðu eiginlega að gera”?
Ég ætla að fara með falda myndavél á mér á skrifstofuna hans og dissa hann rosalega.
Hann veit ekkert að ég er með myndavélina og tek allt upp þegar hann verður orðinn alveg brjálaður og ég ætla að hakka hann í mig.
Ég er orðinn það skuggalegur í að kæfa menn með dissi að hann á eftir að standa, eldrauður í framan, og geta ekkert sagt þegar ég er búinn að láta hann heyra það.
,,Úff, þú ert geggjaðari en ég hélt, ég tek ekki þátt í þessu”
Vertu þá ekki fyrir meðan mest political-incorrect-gaur landsins hakkar löggustjórann í sig.
Svo fór Rökkvi niður á lögreglustöð og villti á sér heimildir til þess að fá viðtal við lögreglustjórann í Rvk.
Ég er frá skólablaði Öldutúnsskóla, get ég fengið viðtal við löggustjórann?
,,Já já væni minn, komdu hérna bakvið og ég skal láta hann vita að þú sért að koma”.
Rökkvi stoppaði við eina myndina sem hékk á ganginum og horfði á daufa spegilmynd sína, djöfull er ég geggjaður, varðstjórinn trúði því bara strax að ég væri í Öldutúnsskóla.
,,Bíddu bara hérna vinurinn þangað til lögreglustjórinn kallar á þig inn”.
Rökkvi fór eina lokaumferð yfir myndavélagræjurnar svo ekkert myndi klikka.
Hann hafði fengið lánaða tösku sem búið var að koma upptökuvél fyrir í þannig fyrir að ekki sást.
,,Komdu inn vinurinn”.
Rökkvi stökk á fætur tilbúinn að láta vaða, kom inn á skrifstofuna og byrjaði að segja að honum þætti leitt að hafa þurft að villa á sér heimildir en það var gert til þess að fá að hitta manninn strax.
,,Hvert var þá raunverulega erindið”?
Nú hugsaði Rökkvi, (þetta er rétta tækifærið, nú nota ég alla reynsluna sem ég er búinn að sanka að mér og hakka gaurinn í mig, hann á eftir að verða svo móðgaður að hann verður blár í framan).
Löggimann! …….. ,,Ha?” Löggimann, löggi pöggi! ……….. ,,°° ” Mörgæs mörgæs, löggimann mörgæs!
,,Hvað ertu að reyna að segja”?
(Ég er að hakka hann í mig) hugsaði Rökkvi. Löggur pöggur!
,,Heyrðu vinur, ég má ekki vera að þessu, þú verður að koma seinna”.
Löggi skröggi!
,,Svona, vertu nú úti”!
Babú babú, löggi höggi!
,,Heyrðu væni minn, hérna er endurskinsmerki, farðu nú út að leika þér”
Lögreglustjórinn vísaði síðan Rökkva á endanum út og bað hann að koma með miða frá foreldrum sínum næst.
Rökkvi fór yfir á Hlemm, sigri hrósandi, (djö. hakkaði ég gaurinn í mig, ég er alveg political incorrect).
Ég á eftir að verða frægur út á þetta, þetta verður sýnt í sjónvarpinu og allir eiga eftir að vilja tala við gaurinn sem gerði lögr.stjórann í Rvk. kjaftstopp.
Nú kemur einn rónavesalingurinn á Hlemmi og segir Rökkva að þetta sé fín taska sem hann er með.
Takk, segir Rökkvi, það er meira að segja myndavél í henni.
Nú segir róninn, er hún dýr?
Já, alveg óggislega dýr, segir Rökkvi, sigri hrósandi, hugsandi um stjórann sem á eftir að verða dissaður BIG TIME í sjónvarpi á landsvísu.
Allt í einu slær róninn Rökkva utan undir með flötum lófa, Rökkvi grípur um andlitið og öskrar eins og unglingsstrákur í mútum.
Hleypur inn á Hlemm og í fangið á einni konunni sem er að afgreiða í sjoppu, segir henni hvað gerðist og hún kemur út með honum til þess að skamma rónann.
En þá var róninn og taskan á bak og burt.
Rökkvi grét sig í svefn þetta kvöld, eins og svo oft áður, og bað litla álfinn, sem er vinur hans og bara hann sér, að hjálpa sér að finna töskuna svo hann yrði loksins frægur sem geggjaðasti dissari sögunnar.
taka ber fram að Þetta ku vera dagsönn frásögn af dissaranum ógurlega
Beware