November 30th, 2003 by admin
Já ég er svo gamall að hafa verið unglingur við upphaf níunda áratugarins
Ungur að aldri var ég farinn að spekúlera talsvert í tónlist og ber þar kannski fyrst að nefna Pönkið sem tröllreið öllu í minni tilveru fram á miðjan níunda áratuginn
Ég var þó ekki svo frægur að hafa verið viðstaddur tónleika Crass í laugardagshöllinni á sínum tíma og er það miður
Eftir það tók við eitthvað það hallærislegasta sem um getur í sögu tónlistar og er það hið svokallaða Heavy Metal sem þá var og hét
Túberað hár, Karlmenn málaðir eins og hórur og fatnaður sem var svo lame að slíkir menn yrðu sjálfsagt lokaðir inni á kleppi ef þeir sæjust á almannafæri nú á dögum
Mötley Crue, Twisted Sister, Poison og hvað þetta nú hét allt saman tröllreið tilveru minni og mun ég sennilega aldrei bíða þess bætur að hafa innbyrgt allan þennan ósóma í stórum stíl
Og það fyndnasta við þetta allt saman er kannski það að flestir af þessum snillingum eru enn við sama heygarðshornið hvað klæðaburð og hárgreiðslur varðar
VH-1 var nefninlega með þátt tileinkaðann þessum ósóma þar sem talað var við þessa menn
Mikið er ég glaður og hamingjusamur að ég skyldi hafa losnað undan þessu áður en ég hlaut af varanlegan skaða á sálartetrinu
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 26th, 2003 by admin
Á þessum tíma fyrir u.þ.b ári síðan bárust regluleg tíðindi af sveinka nokkrum sem kenndur var við Nazisma!
Sveinki þessi var talinn uppspretta alls þess sem illt er og færð fyrir því rök að hann ætti bandamenn m.a í Helgu Nokkuri Möller sem nú hljómar nú sem aldrei fyrr á öldum ljósvakans.
Nú spyr ég eins og fávís kona myndi gjarnan gjöra, Hvað varð um Sveinka?
Helst dettur mér í hug að hann hafi verið myrtur af andstæðingum sínum um síðustu Jólahátíð, en sem fyrr hef ég ekkert fyrir mér í þeim efnum.
Ég óska því hér með eftir upplýsingum sem geta leitt til handtöku þessa bíræfna sveins
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
November 25th, 2003 by admin
Ætla ég að verða skáld!
Hýrast undir súð í fátækt og vosbúð reykjandi Gullslegna Marlboro vindlinga í lengri kantinum
Ég held ég gleymi því seint þegar læknahelvítið niðrá bráðamóttöku landsspítalans okkar allra spurði mig með hæðnisglampa í augum hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór
Hvað í helvítinu kemur þér það við hugsaði ég með sjálfum mér, en talfærin létu á sér standa og ég held ég hafi hreint ekki komið upp orði
Ætli þessi læknir sé kannski róni núna?
Þegar ég var púki langaði mig að verða eins og Sid nokkur Vicious þegar ég yxi úr grasi, en tímarnir breytast og mennirnir með segir einhverstaðar og nú dreymi ég blauta drauma um eitthvað annað sem mér finnst svo sjálfsagt jafn mikil fásinna og Sidda fantasían þegar fram í sækir
Það er allavega gaman að þessu
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 24th, 2003 by admin
Ég er ekki sami maður eftir að ég gróf stríðsöxina bakvið torfkofann innar í dalnum
Ferskur andblær sjávargolunnar umlykur líkama minn sem er í sárum eftir einvígi næturinnar
Saltur sjórinn svíður fætur mína er ég veð út í fjöruborðið eins og í leiðslu.
Þeir ná mér aldrei ef ég syndi út í eyjuna sem glittir í útvið sjóndeildarhringinn
Sakbitnum augum ég rýni í gegnum þokuna sem í vinsemd sinni hylur mig sjónum fyrir fjandmönnum mínum
Geltið í hundum færist nær er ég veð upp í hné.
kuldinn læðist upp eftir líkama mínum líkt og dauðinn sem náði mér næstum, en varð frá að víkja sökum lélegrar tímasetningar og máttleysis
Dauðinn er nefninlega ekkert sérstaklega nákvæmur þegar kemur að tímasetningu og ákveðni
En Ég mælti mér mót við hann upp við rætur fjallsins og þá verður fátt eftir annað en að geyspa því litla sem í brjósti mínu bærist
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 23rd, 2003 by admin
Hvað er málið með fólk sem sér sér ekki fært að svara fyrirspurnum samborgara sinna í netheimum?
Be nice to everybody on your way up, coz you sure as hell are gonna meet them on your way down!
Þennan frasa heyrði ég fyrst af vörum meistara Ozzy Osbourne og kann að vera að þetta eigi vel við í þessu tilviki.
Ástæðan fyrir að ég er að röfla þetta er einfaldlega sú að Ég hef persónulega lent í handfylli af tilvikum þar sem ég hef send fólki einfaldar fyrirspurnir um ákveðin mál sem það hefur verið að rita um á alnetinu en ekki fengið árangur fyrir erfiði mitt, og einfaldlega verið dissaður!
Þetta þykir mér bera vott um hroka og yfirlæti viðkomandi netverja og með öllu óásættanlegt.
Ég vil því hér með skora á siðanefnd alnetsins að taka þetta mál sem fyrst til rækilegrar rannsóknar
Lifi Alnetið
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 22nd, 2003 by admin
Davíð nokkur Oddson skundaði nú fyrir helgi og tók alt sitt fé út úr Búnaðarbanka Kaupþing, að því er virðist í mótmælaskyni
Ummæli stjórnmálamanna um þennan smánarlega kaupauka stórlaxa bankans bera keim af barnaskap og öfund
Bankastarfsemi er bissness, og menn eru sjaldnast lengi í bissness sem ekkert gefur í aðra hönd
Ég er nú ekki alveg nógu vel að mér í bankaviðskiptum til að vita hvort frjálsræði ríkir á þeim markað, þ.e.a.s hvort t.d zeranico holdings geti sisona opnað banka og farið að moka inn fé
Ef svo er myndi ég halda að vel væri grundvöllur fyrir snjalla auðjöfra að fara nú af stað og bjóða upp á ódýra bankaþjónustu
En sjálfsagt má búast við að Vampírurnar keyptu þá samkeppni áður en langt um liði og smá saman útrýma slíkri þjónustu líkt og gerðist með Bónus á sínum tíma
Eitt er þó víst að það landslag sem tíðkast í íslensku viðskiptalífi hlýtur á margan hátt að vera sköpun þeirra sem sitja í brúnni á þjóðarskútunni gömlu og góðu
Það stoðar lítt að byrgja brunninn þegar barnið er dottið í það, sbr Davíð að ætla að slá á hendurnar þessum mönnum sem stefna hans hefur alið af sér
Eitt er víst að zeranico holdings mun halda sínum viðskiptum áfram við Búnaðarbanka Kaupþing og tel ég viðskiptum mínum þar vel varið miðað við gott gengi Bankans
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 22nd, 2003 by admin
—>Hér<--- má nálgast brot úr myndbandi við Lagið Loverman í flutningi Martin L. Gore Depeche Mode töffara…
ég hef gaman af að sjá misjafna tónlistarmenn spreyta sig á þennan hátt á ódauðlegum lagasmíum kollega sinna
Margir Tónlistarmenn gera aftur á móti þau herfilegu mistök við flutning á annara manna lögum, að reyna að kópera nákvæmlega flutning höfundarins
Það að mínu mati springur oftast framan í menn á þann hátt að ekki er möguleiki að líta framan í þá á eftir
Johnny Heitinn Cash var t.d einkar laginn við að taka annara manna lög og flytja þau á þann hátt að úr varð allt að því ný lagasmíð
Þessi útfærsla á Loverman er að mínu mati fersk og skemmtileg nú í svartasta skammdeginu
Njótið
Þess ber að geta að afspilun á skrá þessari krefst þess að tölvan þín lesandi góður sé búin hugbúnaði sem er kominn af fjandanum í beinan karllegg og má nálgast á vefslóðinni www.apple.com/quicktime
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 20th, 2003 by admin
Jón Hreggviðsson var fæddur árið 1650.
Jón var bóndi
á Reyni þegar þeir Árni Magnússon og Páll Vídalín skrifuðu jarðabók
sína.
Hann var nokkuð vel stæður bóndi.
Hinn 12. okt. 1683 lenti
Jóni saman við Sigurð Snorrason böðul.
Báðir voru við skál.
En þegar
ljóst var af degi var böðullinn dauður í læk einum og Jón á bakkanum
með húfu hans á höfðinu.
Þegar ég var *Púki að alast upp vestur á fjörðum fannst mér hundfucking leiðinlegt að þurfa að hanga á skólabekk
Þrátt fyrir það lifir enn í minningu minni eitthvað tímabil þar sem Íslandsklukka Halldórs Laxness var tekinn til umfjöllunar og stúderuð ofan í kjölinn
Jón Hreggviðsson var töffari af slíkri stærðargráðu sem ekki tíðkast nú á dögum, og ekki spillti fyrir að þetta var allt saman framsett á ákaflega skemmtilegan hátt
Nú í kveld var ég sem oftar staddur á bókasafni og rak þar augun í skruddu sem ég fór að glugga í
Viti menn þarna var á ferðinni Leikrit á prenti með sjálfum Jóni Hreggviðssyni í einu af aðalhlutverkum
Mikið hlakka ég til að endurnýja kynni mín við þetta stórmenni íslenskrar bókmenntasögu
Góðar Stundir
*Vestfirska og þýðir Krakkagrislingur
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
November 20th, 2003 by admin
Að ætlast til að ég bíði eftir einhverju myndakerfi er náttúrulega alveg út í bláinn….
Í stað þess að bíða gerði ég það sem ég kann…og það er að sjóða saman html drullumalli ala photoshop
Þennan sóðaskap minn má sjá á vefslóðinni www.zeranico.com/x
Öll gagnrýni er vel þeginn
Posted in Uncategorized | 14 Comments »
November 19th, 2003 by admin
Klikkið á crass logoið hér til hægri og hlýðið á fagra tóna Hljómsveitar sem er væntanleg hingað til lands
Nánari upplýsingar má finna á http://www.dordingull.com/tonleikar
Posted in Uncategorized | 1 Comment »