October 31st, 2003 by admin
Ég veit að mitt barn gerir það alls ekki!
Ástæðan er einfaldlega sú að um komandi helgi fagnar hún fjögurra vetra fæðingarafmæli sínu.
Að sjálfsögðu verður afkvæmið leyst út með gjöfum hvaðanæva að og mikill fögnuður brýst fram.
Það jafnast fátt á við hina tæru og hreinu gleði barnsins, hvert svosem tilefnið er
Hvar á leiðinni, lesandi góður. glataðir þú barnslegu sakleysi þínu og fórst að taka lífið
allt of fucking alvarlega?
Góða Helgi
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
October 31st, 2003 by admin
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 30th, 2003 by admin
Ég veit ekki hversu margir sem þetta lesa þekkja iPod frá Apple, en það er portable Mp3 spilari á sterum sem hefur vakið lukku um víða veröld
Þetta geta PC kallarnir ekki liðið og hafa Dell nú komið með klón af þessu fyrirbæri eplamanna og kalla það Dell DJ
Ég verð þó að segja að mér finnst Apple spilarinn bæði fallegri ásamt því að hafa möguleika á bæði USB 2,0 og Eldvírs tengingu.
Einnig get ég ekki séð að Dell bjóði upp á 40gb útgáfu…
áhugasamir geta skoðað heimasíður viðkomandi framleiðanda til frekari upplýsinga
Sæl að sinni
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 29th, 2003 by admin
“Whattaya lookin’ at?
You’re all a bunch of fucking assholes.
You know why? ‘Cause you don’t have the guts to be what you wanna be.
You need people like me.
You need people like me so you can point your fucking fingers, and say “that’s the bad guy.”
So, what dat make you?
Good?
You’re not good; you just know how to hide. Howda lie. Me, I don’t have that problem. Me, I always tell the truth–even when I lie. So say goodnight to the bad guy. Come on; the last time you gonna see a bad guy like this, let me tell ya. Come on, make way for the bad guy.
There’s a bad guy comin’ through; you better get outta his way!”
Posted in Uncategorized | No Comments »
October 29th, 2003 by admin
Já það kom að því að kona mín hlyti verðskuldaða virðingu fyrir ljósNyndun sína
Myndin hér að ofan vann fyrstu verðlaun á dpchallenge.com
Hvort það var fyrir staka hæfileika hennar sem ljósNyndari eða einstaka fegurð mín sem módels skal látið ósagt, en myndin er góð hvernig sem á hana er litið
Til hamingju ástin mín…
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
October 28th, 2003 by admin
Blóði drifinn vígvöllur alnetsins ber vott um ýmislegt annað en náungakærleik og vinsemd
Maður sem gengur undir nafninu Rökkvi og skrifar á netmiðlinum lagmenning.is (ath engir linkar verða í þessu bloggi) atar skít eins og honum sjálfsagt einum er lagið í allar helvítis áttir
Beta Rokkabillí beibí og Majae svo dæmi séu tekinn, verjast hatrammlega á meðan skríllinn skemmtir sér yfir öllu saman
Aftur á móti skemmtir zeranico sér yfir öðrum og merkilegri hlutum sem eiga þó til að særa blygðunarkennd fólks en þó á ópersónulegan máta, og það er RANTUR.COM
Einnig er talzvert gaman að baggalút en fjandi finnst mér lítið af góðum íslenskum skemmtivefjum á alnetinu
Ég skora því hér með á herra nokkurn er kallar sig promazin sem og aðra af slíkri stærðargráðu sem státa af íslenskukunnáttu sem gaman er að, að hefja nú skrif af miklum móð! c”. )
Kannski Megas gæti orðið góður bloggari?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 28th, 2003 by admin
Hér má sjá voðalega flotta heimasíðu með enn flottari PC Tölvum
Mér og samstarfsmönnum mínum kemur ekki alveg saman um hvort þetta sé hoax eður ei
Hvað haldið þið lesendur góðir?
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 28th, 2003 by admin
is Alive and well, and living in Miami
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
October 27th, 2003 by admin
Finnst mér óþægilegt að hafa myndakerfið í ólestri..
Á meðan safnast upp meistaraverkin hver á fætur öðrum sem þið lesendur mínir farið á mis við
Flutningar vefseturs Zeranico Holdings incorporated verða vonandi fyrr en seinna og þá ætti þetta að komast í lag
Þangað til, sýnið Biðlund
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
October 26th, 2003 by admin
Fregnir herma að 2% framhaldsskólanema hafi selt líkama sinn á einn eða annan hátt!
Þetta hefur vísindaleg rannsókn sýnt fram á
EF hlutfallið er svona hátt á meðal þeirra ungmenna sem enn eru í skóla, hvernig er þá ástatt fyrir þeim ungmennum sem hellst hafa úr skóla af hinum og þessum ástæðum?
Þetta tel ég vera ávöxt langvarandi andlegs meins í þjóðarsálinni
Kynlíf er að verða æ vinsælli söluvara í tengslum við aukna vímuefnaneyslu og annan ólifnað
Hvað er til ráða?
Svör óskast í kommentakerfið
Látum okkur unga fólkið okkur varða
Posted in Uncategorized | 1 Comment »