September 29th, 2003 by admin
Núna þurfa allir að láta taka sig í Rassgatið
Nýtt albúm hefur litið Dagsins ljós í gallerýinu fína og ber það Titilinn Ó Reykjavík í höfuðið á því annars ágæta lagi með Vonbrigði
Ég sé fulla ástæðu til að hvetja lesendur mína nær og fjær til að mæta í þjóðleikhúskjallarann næstkomandi föstudagskveld og heiðra látinn snilling að nafni Johnny Cash og hlusta á skemmtilega tónlistamenn flytja eitthvað af lögum hans
Góða Nótt
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
September 29th, 2003 by admin
Humyndir ónefnds Rússa um að gera Ísland að miðstöð glæpamanna í Evrópu eiga upp á pallborðið hjá meistara Zeranico
Morgunblaðið greindi frá þessum hugmyndum nú í dag og þykir mér þetta í hæsta lagi sniðugt
Nóg er af óbyggðum hér á landi sem enginn vill vera á, og fengjum við greitt fyrir að hýsa skrílinn plús atvinnu við að byggja þessa stofnun, starfa þar við Fangavörslu og annað
Staðsetningin gæti hæglega verið þannig í garð gerð að erfitt væri um vik að strjúka
Ég skora hér með á Ríkisstjórn Davíðs Oddsonar að byrja að vinna að því að byggja samevrópskt fangelsi á Íslandi og það sem allra fyrst
Ísland…….Gott fyrir Glæpamenn
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 28th, 2003 by admin
hversu klisjukennt sem það hljómar þá viðurkenni ég það blygðunarlaust að þessa mynd blóðlangar mig að sjá
Posted in Uncategorized | 4 Comments »
September 28th, 2003 by admin
vissuði lesendur góðir að það er til Breiðskífa með áróðursræðum herra Idi Amin?
Þetta gróf félagi minn upp í gömlu plötusafni herra Mótorhöfuðs í gærkveld og hlustuðum við félagarnir á hluta af þessu við mikinn fögnuð
Gaman væri að koma þessu á stafrænt form og deila þessu með ykkur lesendum og er ekki öll nótt úti með að slíkt verði upp á teningnum í nánustu framtíð
Ég sat s.s með Búddista, Tónskáldi og Málingabarþjón þambaði drullu og rifjaði upp gamla tíma þegar við vorum ungir og framtíðin virtist svört og hafði af því mikið gaman
Áform eru uppi að hópur þessi leggi land undir fót og leiti uppi tónleika með Pixies einhvertíma á næsta ári en þar sem ég var aldrei mikill Pixies aðdáandi tel ég ekki mjög sennilegt að slíkt eigi fyrir mér að liggja
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
September 25th, 2003 by admin
Já nú þykjast sænsk lögregluyfirvöld vera búin að finna meintan morðingja Önnu Lindh
Zeranico spyr einfaldlega hvort um saman mann sé að ræða og réð Olaf Palme af dögum fyrir margt löngu síðan?
Aldur hans bendir til að svo sé ekki en held ég svei mér að öll kurl séu ekki komin til grafar í þessu máli og segir heimildamaður minn í Noregi að jafnvel geti verið um Norskan djöfladýrkanda að ræða sem ánetjast hefur hinum myrku öflum í gegnum Eiturlyf og Rokktónlist
Hinn Illi dvelur enn við gott yfirlæti hjá frændum vorum í Noregi og glottir sjálfsagt við tönn nú í þessum töluðu orðum yfir glæpaöldunni sem veður uppi í hinum norræna heimi
Einnig eru þær fregnir frá Írak að enginn gereyðingarvopn utan Heróíns hafi fundist í landinu
Bandarískir og Breskir hermenn eru nú í óða önn að koma í lóg öllum Valmóanum sem írskir bændur hafa sankað að sér í gróðaskyni í ringulreiðinni sem skapast hefur í kjölfar innrásarinnar, og eru heimildir fyrir að u.þ.b 100 hermenn hafi látist af of stórum skammti af Ópíum/Heróín á síðustu misserum
þess ber að geta að þetta eru óstaðfestar heimildir, en talið er að þær séu á rökum reistar
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
September 24th, 2003 by admin
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
September 24th, 2003 by admin
svo virðist sem það hafi komið vetur bara sisona á meðan ég svaf og enginn látið mig vita
Þetta þykir mér hneysa hin mesta og hyggst ég mótmæla þessu fyrirkomulagi allharkalega nú á næstu dögum
Kaffið gerir kraftaverk á morgnum sem þessum þegar kalt er
Heimur minn virðist vera svo lítill að ég á í vandræðum með að komast þar fyrir
Útveggir veruleikans gráta krókódílatárum þegar hversdagsleikinn þvingar þá til samræðis undir ísköldum sólargeislum.
Zæl að sinni
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 23rd, 2003 by admin
Stóra ástin í lífi mínu á afmæli í dag:D
Til Hamingju með daginn Elskan mín og megi Guð gefa þér gæfu og gott gengi á komandi misserum sem og alla daga
Það er merkilegt hvað Líf mitt hefur breyst við það eitt að kona þessi kom inn í líf mitt, án þess þó að hún þjóni sem plástur á meiddið mitt eða þvíumlílkt.
Það verður allt bara svo miklu skemmtilegra ef maður hefur einhvern til að deila því með
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 8 Comments »
September 22nd, 2003 by admin
Já hann er víst 46 ára í dag karlinn
Þessar upplýsingar eru í boði heida.xo.is
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
September 22nd, 2003 by admin
Maður varð fyrir því voðaverki á dögunum að vera stungin með hnífi og það oftar en einu sinni í Svíaveldi
Það var ekki laust við að mér væri ögn brugðið við þessa frétt og átti þessi maður framan af alla mína samúð, og á að vissu leiti enn
Frekari fregnir af málinu staðfestu enn frekar að um íslending í útlöndum væri að ræða
Málavöxtum var þannig háttað að maðurinn var á gangi með hund sinn, og gekk fram á nýnazíska unglinga sem áttu í deilum á förnum vegi
Þetta gat maðurinn ekki með nokkru móti látið óafskipt og veitti sér umsvifalaust að þessum ungmennum (sjálfsagt með gott eitt í huga) og hugðist að ég held með því leysa þessar deilur
Ekki tókst honum betur til en svo að aumingjans Íslendingurinn hlaut grófa áverka sem verða ekki frekar tíundaðir hér
Hvað er ég að fara með þessu?
Jú lexían sem ég dreg af þessari frétt er sú að maður Abbast ekki upp á Nýnazista á förnum vegi þó lífið virðist liggja við
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 4 Comments »