Singapore Sling

August 31st, 2003 by admin

Fór að sjá þessa miklu snillinga á sóðabúlluni Grand Rokk í Nótt sem leið…

FréttaljósNyndari zeranico.com herra Nazgûl var með í för og smellti af nokkrum myndum sem eru komnar í gallery

Er annars á leið í kvikmyndahús með afkvæmi mitt að sjá Stórmyndina um hann Grisling og hlakka endalaust mikið til

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Laugardagur til Lukku

August 30th, 2003 by admin

Já eða eitthvað þannig

Vinna á Laugardegi er eitthvað sem ég er ekkert sérstaklega hrifinn af, en hvað gerir maður ekki fyrir $$$

Tölvumálin heima við eru í lamasessi svo ég verð að reyna að finna lag við hæfi sem Mp3 Vikunnar hér í vinnuni

í þetta skipti ætla ég ekki að tilkynna hvað lagið er, af þeirri einföldu ástæðu að ég hef ekki hugmynd um hvaða lag það verður en það kemur inn á eftir svo endilega láttu það eftir þér að þrýsta á fallega MP3 Logoið mitt hér til hægri

Ég óska ykkur lesendum mínum góðrar helgar

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Húsráð

August 29th, 2003 by admin

Ef Morgnarnir eru þungir og tilveran virðist svört er óbrigðult ráð að Hengja Sig

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Attention

August 28th, 2003 by admin

Það er eitthvað rosalegt í uppsiglingu!

og hér kemur það……Nýr Ferrari fákur sem mun verða notaður í síðustu þrem mótum í heimsmeistarakeppni í Formula 1 kappakstrinum

Loksins komu þeir út úr skápnum

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Ég

August 27th, 2003 by admin

Ég elska vinnuna mína hún er gefandi
Gefandi
Ég elska lyfjaskápinn hann er Sefandi
Sefandi

Þennan lagstúf lærði ég eins og svo margt annað af honum Promazin vini mínum og er ekki laust við að ég geti á vissan hátt samsinnt þessu nú í morgunsárið þegar ég geri mig kláran í að takast á við eril dagsins

Ég sit hér í því sem var einu sinni þægindi heimili míns en er nú svipur hjá sjón sökum framkvæmda
Það er aftur á móti af hinu góða og er ég þess fullviss að ástandið hafi einhvertíma verið verra

DPChallenge notendur virðast ekki vera hrifnir af blóði drifnum rýting mínum er ég sendi í keppni þar á bæ, og á fyrsta degi kosninga er útlit fyrir slakt gengi

LjósNyndarinn Nazgûl tekur því aftur á móti af stakri rósemi og er þess sannfærður að hans tími muni koma þó síðar verði

Ykkur er aftur á móti frjálst að fara í rassgat og eiga ömurlegan dag mín vegna

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Framkvæmdir

August 26th, 2003 by admin

Ljóst er að lítið verður skrifað hér á síðuna sökum framkvæmda á heimili höfundar.

Jafnvel þurfum ég og mínir fylgifiskar (þ.e.a.s Ég, Hrokapungurinn Zeranico, LjósNyndarinn Nazgûl, spússa mín og kettir) að flytja búferlum um stundarsakir meðan híbýli okkar verða gerð vistlegri

Ég mun þó geta stolist í tölvu við og við svo þið eruð ekki allsendis alveg laus við mig

Þangað til næst bið ég ykkur vel að lifa

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Af Dýflissum og Drekum

August 25th, 2003 by admin

Já að Ramba um frumskóga internetsins má hæglega líkja við ævintýri oft á tíðum

Íslenskar heimasíður einstaklinga eru að verða stór þáttur af netrápi mínu og eru persónulegar blogsíður þar í sérstöku uppáhaldi, og las ég reyndar einhverstaðar að íslendingar ættu heimsmet í bloggi eins og svo mörgu öðru sem að tölvum og tækni snýr

Greinasafnið sigurfreyr.com er eitt af þeim vefsvæðum sem ég hef skoðað í gegnum tíðina en komst ekki að því fyrr en nú nýverið að ég rápaði um kjötheima lítillega með þessum greinahöfundi fyrir allt löngu síðan

Maður þessi var aldrei nefndur annað en Rithöfundurinn af mér og félögum mínum, og ljóst þykir að hann er enn við sama heygarðshornið, þ.e.a.s að Rita! og nú á veraldarvefnum líkt og ég sjálfur

Það sem aftur verra er er að maður þessi hefur lagt Snillingum cannab.is lið í baráttu sinni (ef baráttu mætti kalla) og hamast við að færa rök fyrir kostum þess að lögleiða kannabisefni í trássi við það sem landsmenn í raun vilja skv nýlegri skoðanakönnun sem leiddi í ljós að mikill meirihluti landsmanna vill ekki sjá að slík efni verði gerð lögleg

En hvað um það, Ég get ekki annað en óskað þessum manni alls hins besta líkt og ykkur öllum hinum

Posted in Uncategorized | 5 Comments »

Syfja-Spell

August 25th, 2003 by admin

Já lesendur góðir Orðið sem um ræðir og ég óska eftir merkingu á er Syfjaspell

Kollegi minn og spéfuglinn hann Rökkvi á lagmenning.is sló þessu orði fram í vinahóti til mín á Kommentakerfinu sínu góða og hef ég legið yfir orðabókum alla helgina en ekki haft erindi sem erfiði

Leita ég því til ykkar lesendur góðir eftir merkingu þessa dularfulla orðs.

Ljóst er að þetta hefur eitthvað með syfju að gera, en hvað átt er við er mér um megn að skilja!

Fyrirfram þakkir fyrir að brjóta um þetta heilann með mér

Posted in Uncategorized | 3 Comments »

Mínus

August 24th, 2003 by admin

Fór á útgáfukonsert með meisturunum í Mínus áðan í Listasafninu

Er þetta í þriðja sinn sem ég sé þessi menn spila Live og verð ég að segja að mér þykir þeir ekki eins þéttir og hin skiptin sem ég sá þá….
Nýja platan þeirra er að mörgu leiti meira commercial Rokk en þeir hafa gert áður og þykir mér það miður….

Tónleikarnir voru samt sem áður að mörgu leiti skemmtilegir og tók ég eitthvað af myndum sem ættu að koma í galleríið góða áður en langt um líður

Jæja myndirnar eru komnar í galleríið ….Ljóst þykir að ef ég ætla að öðlast frægð og frama sem RokkljósNyndari verð ég að öðlast víðlinsu og Flass

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Life and Death

August 23rd, 2003 by admin

Líf og dauði er eitthvað sem er óhjákvæmilegur partur af tilverunni.

Spússa mín lenti í heldur óskemmtilegri reynslu í gær.
Þannig var mál með vexti að hún sat sem oftar við tölvustúss hér á heimili okkar.
Það sem vakti athygli hennar var að einn af heimilisköttunum okkar var í trylltum leik á á gólfinu með Litla Mús
(Kettir okkar eiga þartilgerðar mýs sem þeir hafa einkar gaman af að leika sér að)
Konan mín hafði af þessu nokkuð gaman og slóst þar af leiðandi í leikinn og var að dingla þessu músalíki kattarins í leiknum þeim arna

í stuttu máli sagt endaði með því að konunni þreyttist leikurinn og lagði hún þá músaræksnið á þartilgerða músarmottu sem fólk hefur gjarna við tölvur sínar

Við það vakti það athygli hennar að mús þessi var eitthvað ekki eins og hún átti að vera!
og við nánari skoðun kom í ljós að Músin var ekki Leikfangamús eins og hún hafði talið í fyrstu heldur Afhausuð Hagamús sem kötturinn hefur sjálfsagt veitt sér á ferðum sínum um hverfið:o

Við þetta brá spússu minni mjög og hryllir hana enn við tilhugsunina um að hafa brugðið á leik með kettinum í þessum hrottaskap hans

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries