DPC

July 31st, 2003 by admin

Ásættanlegur árangur náðist í DPChallenge keppni sem var að ljúka
Hér má sjá framlag mitt en það lenti í 13ta sæti af 171 sem ég tel mjög ásættanlegt fyrir niðursetning af mínu tagi.

Lítið var um svefn á þessu heimili síðastliðna nótt svo menn eru í meira lagi vankaðir nú í morgunsárið en geng engu að síður borubrattur inn í enn einn daginn í hversdagsleika ömurleikans með bros á vör og er ósk mín að þið lesendur góðir reynið að gera slíkt hið sama

Í gærkveld horfðum við spússa mín á myndina What a Girl Wants og var ekki laust við að ég felldi tár yfir þessari líka svakalega sykursætu mynd…
Já þetta segi ég og skrifa aðeins til að undirstrika þá staðreynd að ég er Maður með tilfinningar, en ekki kjötstykki eins og kvenþjóð þessa lands virðist halda

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

LjósNyndari

July 31st, 2003 by admin

Hæ ég hetir zeranico og ég er Ljósnyndari..

Þetta get ég sagt án þess að þurfa að eiga á hættu að vera lögsóttur fyrir að kalla mig eitthvað sem ég er ekki

Í bígerð er að stofna félag íslenskra ljósnyndara, en enn sem komið er mun ég vera eini maðurinn á íslandi sem ber þennan skemmtilega titil sem minnir þó óneitanlega á Lögverndað starfsheiti sem flestir þekkja sem Ljósmyndari….Látið samt ekki blekkjast lesendur góðir þegar ég segi þetta og skrifa ….

Gerum heiminn að betri stað að búa á! Gerum ísland að heimsveldi Ljósnyndara og Arpitekta

Konan mín aftur á móti langar mikið til að verða ljósmyndari og hef ég fulla trú á að henni takist það fyrr en hana grunar og hef ég því til sönnunar Hér myndir sem hún hefur tekið og eru nú til sýnis á þessum fína vef Margmiðlunar

Fylgist með

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Blökkumenn í kröggum

July 29th, 2003 by admin

I Got Your Data From The Nigerian Chamber Of Commerce And
Industry, And A Check On Your Profile Has Convinced Me That You
Could Be Trusted With A Large Sum Of Money That We Intend To
Transfer Overseas, For Safe Keeping.

Þetta er hluti úr bréfi sem mér var rétt í þessu að berast
Blökkumenn halda áfram að reyna að bera á Zeranico fé með öfgafullum hætti

kann að vera að skríll láti freistast fyrir svona tilboðum en Zeranico er guðhræddur maður og lætur ekki gylliboð kölska steypa sér úr stól

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Árni mætir

July 29th, 2003 by admin

Já þetta segi ég og skrifa …

Sakamaðurinn og misyndispostulinn Árni Johnsen kemur til með að stjórna brekkusöngnum fræga í vestmannaeyjum um vitlausramannahelgina…
Þetta gerir hann þrátt fyrir að vera dæmdur maður og dúsir nú við vænan rúmkost á kvíabryggju

Ég er hræddur um að Lárus Johnson sem ég gruna að sé náskyldur herra Árna fengi ekki slíkt leyfi þó mikið lægi við

Það er víst ekki sama hvort það er Lárus Johnson eða Árni Johnsen

Góðar Stundir

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Blogg og ekki Blogg

July 28th, 2003 by admin

Hér má lesa áhugaverðar heimildir um Blogg fyrr og síðar…

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Rökkvi

July 28th, 2003 by admin

Rökkvi nokkur Vésteinsson (sonur Vésteins sem átti sinn þátt í að lögleyfa framúrakstur á miklubrautinni forðum daga) skrifar pistla við mikinn fögnuð þroskaheftra ungmenna á vef er kennir sig við lámenningu hefur tekið heldur stórt upp í sig núna

Hefur hann skipað sjálfan sig sem löggæsluaðila í stríðum sínum svokölluðum og hefut lagt okkur niðursetningunum línurnar um hvað við megum og hvað ekki í slíkum orrustum

Eitthvað virðist það hafa farið fyrir brjóstið á honum um dagana þegar ég nafngreindi systir hans í commentakerfinu hans í tvíræðum skilningi því slíkt hefur hann sett rautt bann á

Einnig virðast heimsóknir með afsagaða rörbúta, nú eða það sem til fellur til barsmíða í hönd vera á bannlistanum hjá þessum unga manni

4) Maður hótar ekki fólki með einhverju eins og þú ætlir að berja það eða passa að það fái ekki vinnu einhversstaðar framar - maður heldur deilunni á netinu

Þetta þykja mér í meira lagi leiðinlegar leikreglur og neita alfarið að standa í einu eða neinu stríði við þetta bólugrafna og sambrýnda unglingsgerpi sem virðist á þessum ummælum vera huglaus með öllu

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Áfengisneysla

July 27th, 2003 by admin

Íslendingar þamba áfengi fyrir um 450 milljónir króna um verslunarmannahelgina..
Þetta er magn upp á um 660 þúsundir lítra
ofan á þetta bætist sjálfsagt neysla ólöglegra fíkniefna og landa upp á einhverjar milljónir.

og hverir eru það sem hagnast á þessu?

Jú íslenska ríkið er að því er ég best veit langstærsti aðilinn á íslenska Vímuefnamarkaðnum og makar sinn krók vel og vandlega um þessa helgi
Á móti kemur kostnaður vegna löggæslu ýmisskonar,og aðhlynningu þeirra sem verða það illa úti í baráttuni við bakkus og fylgifiska hans að þeir þurfa á læknishjálp að halda.
Þannig að þegar uppi er staðið er hagnaðurinn kannski ekki svo ýkja mikill….

En ég var að velta fyrir hvort fyrirbæri þetta sem verslunarmannahelgin íslenska er eigi sér einhverjar fyrirmyndir erlendis?
Þar sem fólk kemur saman í nokkra sólahringa í þeim tilgangi að hýrast í tjöldum í rigningu og vosbúð við drykkju og saurlifnað

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Gallery update

July 27th, 2003 by admin

Bætti tveim nýjum albúmum í hið margfræga Gallerí…

Viðfangsefnin eru margvísleg og eitt af því sem mér datt í hug að reyna að endurskapa var stemmingin sem myndaðist er Eva var búin að eta eplið marguntalaða í Eden forðum.

Gaman væri að fá einhver komment um þessa iðju mína ef það er þá einhver sem skoðar…..(það er hægt að setja komment á myndirnar)

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Laugardagur

July 26th, 2003 by admin

Á Sunnudögum Kristur kemur
í KFUM og gefur krökkunum Dóp

Það var einhvern veginn svona sem sem Megas söng forðum en ég er of myglaður til að nenna að leita að textanum í heild sinni, en ég er nokkuð viss um að hann var alger snilld

Handrukkarar mylja hnéskeljar og Eiríkur Jónsson dregur fársjúka alkóhólista í gegnum Kaffi Austurstræti í von um að þeir fái bata frá drykkjusýki sinni og talar um að það gefi betri raun en hin margfrægu 12 spor AA samtakana

Eru það kannski skilaboð frá Guði að það skuli vera akkúrat 12 skref í gegnum þennan margfræga bar í miðborg Reykjavíkur?

Veðurfræðingarnir höfðu rangt fyrir sér með veðrið í dag og sýnist mér á öllu að möguleiki sé að fara í næsta kirkjugarð og skjóta myndum sem minna á Aldingarðinn Eden

Mp3 Vikunnar uppfært að vanda og óska ég landsmönnum nær og fjær Góðrar helgi

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Misneyting

July 25th, 2003 by admin

Heimur harðnandi fer ..

Ung kona á Bolungarvík lagði nú nýverið fram kæru á hendur þremur ungum mönnum fyrir að neyða sig til kynmaka…
Konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar..
aftur á móti rak mig í rogastans að sjá þetta orðalag notað og verð ég að viðurkenna að orðið Misneyting hefur ekki orðið á vegi mínum fyrr svo ég muni

Þegar sveitalubbar í Bolungarvík eru farnir að stunda hópnauðganir (Nú eða misneytingar) þá þykir mér fokið í flest skjól í siðferðisvitund landans, og dreg ég þá ályktun að Norsk áhrif séu í vaxandi mæli að fara með Íslensk ungmenni til helvítis

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries