June 30th, 2003 by admin
Ef þú lesandi góður ert svipað staddur og ég varðandi kvikmyndir, þ.e.a.s ert í stökustu vandræðum að finna mynd sem varið er í mæli ég eindregið með
People I know eða eins og það myndi útleggjast á íslensku Fólk sem ég þekki…Al Pacinu sýndi mér glögglega í þessari mynd að hann hefur engu gleymt og ber að taka fram að hann lék aðalhlutverk í einni af bestu myndum allra tíma, nefnilega Scarface
Mynd þessi eins og titillinn gefur til kynna fjallar um mann sem þekkir alla og allir þekkja hann
Spilling og úrkynjun er ekki langt undan og er maður þessi á ystu nöf líkamlegarar og andlegrar uppgjafar
Áhorfandinn fær að fylgjast með stuttum en ákaflega áhrifaríkum kafla í lífi hans þar sem uppgjör á flestum vígstöðvum eiga sér stað
inn í þetta fléttast ekkja látins bróðir hans svo eitthvað sé nefnt en kýs ég að láta sem minnst uppi um hvað gerist fyrir þennan mann sem Pacino túlkar á mjög svo áhrifaríkan hátt
Identity bar einnig fyrir augu mín um helgina og mæli ég einnig með henni fyrir þá sem taka kvikmyndir ekki allt of hátíðlega
Zæl að sinni
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 28th, 2003 by admin
Jæja þá er komið að Mp3 vikunnar
Að þessu sinni er það snillingurinn hann Frank Zappa með lag sem var í miklu uppáhaldi á skrýtnu tímabili lífs míns og er textinn vægast sagt á furðulegu nótunum
Tímataka fyrir Nürburgring kappaksturinn er rétt í þann mund að fara að hefjast því segi ég ekki meira að sinni
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 27th, 2003 by admin
Helgin ber að dyrum og önnur af þrem vikum mínum í fríi frá störfum er að líða undir lok
All things move toward their end
On that you can be sure
Söng meistarinn svo snilldarlega og sýnist mér á öllu að hann hafi haft á réttu að standa þarna sem endranær
Helgina ætla ég að nota til hins ýtrasta í formúlugláp og aðra afþreyjingu og vona svo sannarlega að það viðri vel til myndasmíði utandyra svo eitthvað sé nefnt
Góðvinur minn herra Promazin hefur yfirgefið heimili sitt é veraldarvefnum með stuttri kveðju og er ég fullviss um að margir sakna hans sárt á þessum grundvelli en er jafnframt handviss um að hann á eftir að setja sitt mark á þennan vef er kennir sig við veröldina á einn eða annan hátt í náinni framtíð
Góða Helgi
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 26th, 2003 by admin
Í þessum töluðu orðum er verið að fullvinna kvikmynd sem tekinn var í kveld
Tökumaður var enginn annar en undirritaður og má sjá hann hér upp á þaki með tökuvélina góðu sem brúkuð var til verksins…
Útkoman verður að tala sínu máli og get ég ekki fyrir nokkra muni sagt til um hvort mér er þetta í blóð borið eður ei, en gaman var þetta
Tekið skal fram að mynd þessa tók Betri Helmingurinn minn títtnefndi
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 26th, 2003 by admin
Skrönglaðist út í blauta nóttina með myndavélina í leit að Skoti sem væri vænlegt til að skjóta mér upp á stjörnubjartann himininn
hér má sjá það skásta sem náðist úr þessu brölti mínu og er það einlæg von mín að einhverjum líki
Góða Nótt
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 25th, 2003 by admin
Til Lukku Með 12ta sætið Heiðuz…
Já merkilegt nokk þá lenti Myndin hennar í tólfta sæti í Self-Portrait challenge á DPC
Hvar myndin mín endaði þarf ekkert að ræða ….
Betur má ef duga skal og ég læri meira með hverjum degi, og ekki bara í ljósmyndun heldur einnig í lífsfærni og umburðarlyndi gagnvart húmorsleysi meðbræðra minna svo eitthvað sé nefnt
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 24th, 2003 by admin
Já það er firra að skrifa Firra með ufsilon svo ekki meira sé sagt
Íslenska er fallegt og gott mál en menn sem kunna ekki að stafa eiga ekki að reyna að slá um sig með flóknum orðasamsteningum s.s að vera veruleikafirrtur
DPChallenge á hug minn allan þessa dagana, þó svo ljósmyndahæfileikar mínir séu af ákaflega skornum skammti hef ég mjög gaman af að senda inn myndir þarna svo ekki sé minnst á að skoða það sem aðrir senda inn
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 24th, 2003 by admin
Ef hann er bloggkóngur Íslands - þá er ég Birgitta Haukdal
Hvað er þessi Zeranico að væla? Reyna að segjast vera bloggkóngur Íslands bara til að væla út síma frá OgVodafone. Þú getur bara sjálfur keypt þér síma þarna Gyðingurinn þinn. Og til þess að vera bloggkóngur landsins þá þarf einhver að lesa bloggið þitt
Þetta rakst ég á á síðu Lágmenningar rétt í þessu og er ég svo upp með mér að ég á í erfiðleikum með að pissa hreinlega ekki á mig af kátínu…
Þetta merkir ekkert annað en að þessi vefur er nú flokkaður sem Lágmenning, ef ekki hreinlega ómenning ..
En að einhver skildi loksins taka bullið mit hátíðlega og allt að því móðgast var fyrir löngu tímabært og er það ekkert annað en fjöður í hatt minn og segi ég það satt að hann er nú að verða ansi líkur hænu þessi hattur minn, slíkur er fjaðraskrúðinn
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 24th, 2003 by admin
Self-improvement is masturbation.
Self-destruction is the answer
Tyler Durden
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 24th, 2003 by admin
Nú er svo komið að Landsíminn sem við öll áttum hér í denn en Dabba datt í hug að einkavæða við misjafnar undirtektir fyrri eiganda er farinn að sponsa bloggara í farsímanotkun
Þær blogbeljur sem um ræðir eru þau Katrín punktur is og Doktor Gunnar í það minnsta en heyrst hefur um að minnsta kosti einn annan snilling sem ég veit því miður ekki nánari deili á til að upplýsa að fullu
En þar sem ég er sjálfkjörinn Blog-Kóngur Íslands skora ég hér með á Og Vodafone að vera nú ekki eftirbátar samkeppnisaðila sinna og láta mér sem snöggvast í té Fínan og fallegan síma af dýrri og flottri gerð til afnota prívat og persónulega án nokkura skilmála whatsoever af þeirra hálfu
Þar sem ég er viðskiptavinur við þetta ágæta fyrirtæki finnst mér nú ekki til mikils ætlast að þeir geri þetta lítilræði mér og öðrum til dýrðar
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »