Orð að Sönnu

May 31st, 2003 by admin

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Zimbabwe

May 31st, 2003 by admin

Enn hafa fjárglæframenn haft við mig samband í von um aðstoð og láta gylliboðin ekki á sér standa

Michael Stevens Junior, the son of Doctor. Simon Stevens heitir þessi virti náungi sem nú skrifaði mér langt og tilfinningaþrungið bréf í von um dýrmæta aðstoð mína, og nú er gengið svo langt og ætlast til að ég leggi mér land undir fót alla leið til Amsterdam..

Þessu ætla ég að sofa á í nótt og svara í býtið

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Gjaldkerinn

May 31st, 2003 by admin

“Hann hafði ekki hina traustu ímynd gjaldkerans og virkaði stressaður” Segir einn Samstarfsmanna Sveinbjörns hjá Símanum.
Hann segir að Sveinbjörn hafi reykt mikið sem enn hafi undirstrikað taugaveiklunareinkennin

Samkvæmt heimildarmönnum mínum í Noregi eru þetta mjög dæmigerð einkenni manns sem notar glænýtt eiturlyf sem að mestu er búið til úr Kókaíni og leynilegu Norsku hugbreytingarefni sem hefur verið í þróun á undanförnum misserum

Verið er að kanna tengsl Sveinbjarnar og félaga við Norsku mafíuna ásamt fleirru sem íslenska leyniþjónustan hefur einhverra hluta vegna kosið að leyna fyrir okkur almúganum en eins og þið sem þetta lesið vitið hefur greinarhöfundur sambönd á undarlegustu stöðum og er upplýsingaflæðið oft það miki að ekki gefst tími til að vinna úr þeim gögnum sem berast svo ef það vakna einhverjar spuringar hjá þér kæri lesandi þá endilega hafðu samband á rafrænu formi t.d í formi tölvupósts

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Sólmyrkvi

May 31st, 2003 by admin

Nú á morgun verða tónleikar í Hinu Húsinu þar sem Forgarður Helvítis og fleiri slíkar hljómsveitir munu leika fyrir dansi
Hef ég ákveðið að fara í félagi við annan mann að berja augum þennan merka atburð og jafnvel smella af myndum við það tækifæri

Í vinnslu er að láta prenta boli sem ég og þessi félagi minn munum klæðast við þetta tilefni, og verða þeir feminista-bleikir með áletruninni Ég er HOBBÝSATANISTI!

Viðburður þessi mun hefjast klukkað 18:00 að staðartíma og vil ég hér með hvetja alla punk/rokk áhugamenn/konur til að mæta og njóta Geðsýkinar beint í æð

Þangað til þá

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Mínus-Halldór Laxness

May 29th, 2003 by admin

Nýja Plata Mínus sem ber það skemmtilega nafn Halldór Laxness hefur borist mér til hlustunar

Mig skal ekki undra að Rokktímarit um víða veröld haldi ekki vatni yfir þessari afurð, slík er snilldin að ég sjálfur held vart saur og þvagi

Lögin sem eftir fyrstu hlustun standa uppúr myndu vera My name is Cocain og Romantic Exorcism að mínu mati og skemmti ég mér konunglega yfir persónugerð hins sívinsæla fíkniefnis ásamt kröftugu undirspili þessara ungu snillinga

I´ll make a schoolboy forget all his books!……..I´ll take a Mother and make her a whore!……My name is Cocain…

Skildueign allra Rokkara

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Ljósmyndun

May 28th, 2003 by admin

Þessu er ég að leika mér að þessa dagana…, þ.e.a.s Stafrænni ljósmyndun 101 sjálflært eins og annað sem ég tek mér fyrir hendur

Hér gefur að líta stærra eintak af þessari mynd sem að mínu mati er fyrsta meistaraverkið af mýmörgum sem eiga eftir að renna mér undan rifjum á næstu misserum

Fylgist með

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Vændi

May 28th, 2003 by admin

Frétt á Moggavefnum telur fram tekjur Vændiskonunar í bílskúrnum í Hafnafirð og eru þær ýfið í hærri kantinum að mínu mati
Reiknast mér til að konan hafi innbyrgt um 300 getnaðarlimi á þessu 9 mánaða tímabili ef miðað er við 30þús krónur fyrir viðvikið sem var auglýst tilboðsverð þessarar Gleðikonu og státaði hún meðal annars af bezta verðinu á höfuðborgarsvæðinu svo eitthvað sé nefnt

Nú er þetta einungis ein kona og má teljast nánast öruggt að fleirri séu að maka sinn krók við svipaða iðju, og spyr maður sjálfan sig þá, Er kynlífsiðnaður að verða veigamikill þáttur í íslensku atvinnulífi?
Nú ætti Davíð að sjá leik á borði og búa til skattalög er varða starfsemi sem þessa því eitthvað kostar það samfélagið að halda úti svona framtakssömum gleðikonum sem hýrast í bílskúrum og öðrum illa hirtum híbýlum við sauruga iðju sína

Zæl að sinni

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Annir

May 27th, 2003 by admin

Sökum anna við nýtilkomið áhugamál og störf að merkilegum málum hef ég verið latur við að sóða inn færslum hér á þessa síðu

en ef Guð og Promazin lofa fara þessir hlutir í eina sæng áður en Jól og áramót renna sitt skeið

Sumarið er að berja að dyrum með öllum þeim ósóma sem því óneitanlega fylgir og íslenskir fjárglæframenn láta rækilega til sín taka en eins og ég sjálfur komst svo snilldarlega að orði einmitt í dag og vitna ég hér með í sjálfan mig orðrétt….Allir bissnessmenn eru glæpamenn það fer bara eftir því hvort upp um þá kemst hvort samfélagið samþykkir þá sem heiðvirða borgara

The Master has spoken

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Samsæriskenning

May 26th, 2003 by admin

Unnið er hörðum höndum þessa stundina í herbúðum Zeranico að samsæriskenningu er snýr að Landsímanum og peningaþvætti ýmisskonar, og virðist í fyrstu að þetta landsfræga símafyrirtæki sé í raun skálkaskjól fyrir Norska heróínframleiðendur

Ekki liggur ljóst fyrir hvernig þessi Prestsonur og Félagi hans tengjast málinu en jafnvel er talið að íslenska prestamafían sé með í ráðum og Planet Pulse þjóni sem Satanískur samkomustaður um nætur ásamt að vera líkamsræktarstöð á daginn

Rannsóknum mínum er síður en svo lokið svo fylgist með

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Af fína og Fræga fólkinu

May 24th, 2003 by admin

Já fína fólkið Girnist peninga og það mikið af þeim

Fyrrverandi Sjónvarpsstjóri Skjás eins og kumpáni hans véluðu háttsettann mann hjá Landssímanum til að verða sér út um smá skotsilfur og það þónokkuð af því

Meðfylgjandi mynd sýnir þessa snillinga á leið til dóms og laga í gær og fæ ég ekki betur séð en að þessir menn séu allþreytulegir, enda er það sjálfsagt talsvert verk að koma svona miklu fé í lóg

Það sem ég velti fyrir mér þegar svona fréttir berast mér til eyrna er oftast Hvað rekur þessa menn til þess arna?
Eiturlyfjafíkn er oftast upp á teningnum þegar t.d um bankarán er að ræða eins og nýlegt dæmi sýnir, en þegar svona háar fjárhæðir eru í spilinu fer maður að spurja óþægilegra spurninga sem erfitt er að svara

Rannsóknarblaðamaður á mínum snærum er að skoða málið ofan í kjölinn og bendir flest til að peningarnir hafi verið notaðir í Norskar eiturlyfjarannsóknir eða innflutning á plútónínum fyrir nýstofnuð hryðjuverkasamtök sem hafa það að markmiði að sprengja kjarnorkusprengju á Bessastöðum

Fylgist með

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

« Previous Entries