April 30th, 2003 by admin
Það hefur fengist staðfest að við Íslendingar erum úr hófi fram Bjartsýnir og hefur það verið lagt til að þjóðinni verði sæmd Friðarverðlaun Nóbels fyrir þetta afrek þar sem það þykir mjög markverður árangur fyrir þjóð í þessari stöðu að ná þessum markverða árangri í bjartsýni og hefur sá árangur reyndar farið fram úr björtustu vonum….
Til Hamingju gott Fólk
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 30th, 2003 by admin
Hrottinn er víst einum erfingjanum ríkari og á hann allar mínar hamingjuóskir óskiptar sem og unnusta hans og fjölskylda
Lokapunkt hefur verið náð í samstarfsverkefni ljóðaunnenda og er afraksturinn vægast sagt Mjög Góður ..
svansson.net er ljót síða og leiðinleg lestrar og vara ég fólk við að heimsækja hana á liðnum misserum og þetta segi ég bæði ótta og nafnlaust út í tómið fullur af sjálfsöryggi og einskærum hroka …..og eins og promazin (Sem einnig kýs að láta ei nafns síns getið) komst svo skemmtilega að orði……..híhíhí :> <--- it's good to be evil
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 28th, 2003 by admin
Hversu langt nær frelsi mitt til að segja það sem mér finnst um það sem mér dettur í hug á þessu hugarfóstri mínu sem í daglegu tali kallað er Vefsíða?
Það að Ranturinn hafi hálfpartinn verið þvingaður til að leggja upp laupana veldur mér hugarangri….
Hvaða lög og reglur gilda um niðrandi skrif á vefsíðum spyr ég í fávisku minni?
Allir vita að það er hægt að finna niðrandi ummæli um nánast hvað sem er á þessum stóra og mikla vef er kennir sig við alla helvítis veröldina og verður fólk að velja og hafna hvað það vill sóða í sig af öllum þeim ósóma
Ég persónulega skoða það sem ég hef gaman af á þessum vef og kýs að láta það sem mér finnst á einhvern hátt ekki samræmast mínum lífsviðhorfum og áhugamálum eiga sig
Ég í einfeldni minni held í raun að Rantinum hafi ekki gengið nokkuð illt til með þessum skrifum sínum, heldur hafi á kaldhæðnislegan hátt verið að benda á sjúkleikann allan sem veður uppi í þessu þjóðfélagi og þó víðar væri leitað.
Þó það kunni vissulega að vera að ég hafi rangt fyrir mér þá held ég einhvernveginn að þessir menn gangi ekki um bæinn hálfrisnauðgandi og annað eftir því
Menn fara og munu fara yfir strikið í húmor og sókn eftir vindi eins og nýlegt dæmi með Jóni Gnarr sýndi þar sem hann hafði sifjaspell að gamansömum leikþætti í útvarpsþætti sínum, og oft má sjálfsagt látið kjurrt liggja,fremur en ekki í þeim málum…
Cannab.is lifði af árásir andstæðinga sinna með eftirminnilegum hætti og fá í dag að ræða sínar hassreykingafantasíur óáreittir á vefnum svo því ættu þessir menn ekki að fá að gera slíkt hið sama?
Hvað verður það næst sem ritskoðarar þessa lands taka sér fyrir hendur spyr ég í fávisku minni og einfeldni?
Góðar stundir
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
April 28th, 2003 by admin
mbl.is segir frétt af áhugaverðu sakamáli sem skekur íslenskt þjóðlíf svo um munar
Kjaftasögurnar segja að Davíð hafi sent sína útsendara í fyrrverandi heimabæ minn í leiðangur með það eitt að markmiði að ræna þessari frægu mynd af andstæðingi sínum
Ekki liggur ljóst fyrir hvað Davíð ætlar sér með myndina en grundsemdir eru uppi um að hann hafi hengt hana upp í bílskúrnum,og noti hana sem Dart spjald! sér og fjölskyldu sinni til skemmtunar …
Málið er í rannsókn hjá RLR
Fylgist með
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 28th, 2003 by admin
Jæja þá er www.zeranico.com komið í full swing og fyrst hægt að tala um að um alvöru vefsíðu sé að ræða …
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 28th, 2003 by admin
Þvengill færist nær
Og nær og nær og nær
Og nær niður á tær
Sultubrauð í franskbrauðslíki
Með límtúpu í sturtu
Hoppar þér á hné
Og segir dimmalimm
Súrrealísk ljóð eru sem hunang í vit mín
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 28th, 2003 by admin
Góðan daginn gott fólk
Hvað ætli kötturinn færi mér í morgunmat í dag?….ætli bréfberinn komi með storkinum eða var mamma bara að ljúga mér öll þessi ár?
Allavega Stend ég andspænis þessum degi með kökkinn í hálsinum og sköpunarverk skaparans sem allt skapaði stendur sem minnisvarði allt um kring …
Gleðilegan mánud
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 27th, 2003 by admin
Þessi spurning og mörgum öðrum verður sennilega seint svarað..muniði eftir Why plaggötunum in da Eighties?….
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 26th, 2003 by admin
The rocket scientist
Police in Wichita, Kansas, arrested a 22-year-old man at an airport hotel after he tried to pass two (counterfeit) $16 bills.
From ARIZONA
A company called “Guns For Hire” stages gunfights for Western movies, etc. One day, they received a call from a 47-year-old woman, who wanted to have her husband killed. She got 4-1/2 years in jail.
From New Jersey
A man walked into a 7-11, put a $20 bill on the counter and asked for change. When the clerk opened the cash drawer, the man pulled a gun and asked for all the cash in the register, which the clerk promptly provided. The man took the cash from the clerk and fled–leaving the $20 bill on the counter. The total amount of cash he got from the drawer? Fifteen dollars.
No Nukes
The Chico, California, City Council enacted a ban on nuclear weapons, setting a $500 fine for anyone detonating one within city limits.
Svona eru Bandaríkin i dag
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
April 26th, 2003 by admin
Zeranico hefur himinn höndum tekið!
Sá tími er liðinn að ég sóði í mig amerískum kvikmyndum því ég hef fundið lausn á öllum mínum lúxusvandamálum..
Bollywood er eitthvað sem hinn vestræni heimur þekkir ekki til hlýtar og finnst mér það vera miður og vil ég hér með skora á eigendur kvikmyndahúsa hér á landi að hætta hér með öllum viðskiptum með amerískar kvikmyndir og sýna framvegis Bollywood ræmur
Í þessum myndum eru líka siðgæðisstaðlarnir hærri og því ekkert um klámfengin atriði þar sem fólk er að slefast hvert upp í annað á adamsklæðum einum fata
Einnig fá kvikmyndahúsagestir meira fyrir peningana sína þar sem þessar myndir eru almennt lengri en hefðbundnar Hollywood ræmur svo það græða gjörsamlega allir á þessu
Lifi Bollywood
Posted in Uncategorized | 1 Comment »