March 31st, 2003 by admin
Mánudagar eru ekkert sérstaklega skemmtilegir dagar að mér finnst..
Samt sem áður hefur dagur þessi brosað hinu blíðasta við mér og mínum…
Lyftan er biluð svo ég verð að ganga stigann og allt það….en shit hvað ég held að lífið geti verið gott
Gamall skólafélagi minn og fyrrum pönkari kom á vinnustað mín í dag í leit að þjónustu sem væri sjálfsagt ekki í frásögur færandi ef hann hefði ekki haft meðferðis innpakkaða vinlyl plötu að gjöf til mín ….Þetta sagðist hann hafa fundið í fórum sínum og fannst full ástæða til að færa mér hana að gjöf …
Það var ekki laust við að ég væri fullur eftirvæntingar þegar ég reif pappírinn utan af þessu og datt einna helst í hug að þarna væri á ferð klassískt pönkaraverk sem vert væri að setja á fón sem ég reyndar á ekki til á dimmu vorkvöldi með kaffibollanum…
Á sama hátt leyndu vonbrigðin sér varla þegar kom í ljós að þarna var á ferð gömul LP plata með hinum ömurlegu Whitesnake sem ég hálfpartinn skammast mín fyrir að hafa farið á tónleika með fyrir allmmörgum árum
En eins og maður segir við börnin á jólunum þá er það ekki innihald pakkans sem skiptir máli heldur hugurinn sem býr að baki og viðurkenni ég fúslega að hann hlýjaði mér um hjartarætur þessi gamli skólafélagi minn með þessum misheppnaða gjörningi sínum og það er það sem stendur upp úr og mættu fleiri taka sér svona gjörninga til fyirmyndar….
Farið í friði
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 31st, 2003 by admin
Nú er loksins komið svo fyrir þessum vef að hann lítur þannig út að ég þarf ei að skammast mín fyrir það…
NjOy
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 31st, 2003 by admin
ekki bara að herra Bush sé með ómeðhöndlaðan alkóhólisma heldur er hann einnig Jesúhoppari og bókstafstrúar geðsjúklingur ..
Þetta þýðir aðeins eitt! ….og það er að þetta stríð sem hann segir að sé barátta gegn hryðjuverkum er ekkert annað en enn eitt trúarbragðastríðið og sennilegast upphafið að endalokum mannkyns..
Vinur minn einn fullyrðir að Bush sé sjálfur antikristur og Blair hvorki meira né minna en Dýrið sem minnst er á í opinberunarbókinni sem þið hafið sjálfsagt öll lesið spjaldana og milli .
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 30th, 2003 by admin
Hvernig gerir maður skít meira aðlaðandi en hann er í raun og veru?
Jú maður kallar hann kúk og pakkar honum inn í aðlaðandi umbúðir og setur jafnvel rauðan borða utan um allt saman
Hugmynd handa honum Geira á Maxims eða hvað hún nú heitir þessi strippbúlla sem sá ágæti maður er að myndast við að hafa lífsviðurværi af að reka
Í stað þess að kalla þetta afhæfi sem þar er stundað Einkadans væri ráð að kalla það Einkanudd þar sem bæði gefandi og þyggjandi eru naktir,löðrandi í olíu og fíneríi
Því til viðbótar væri hægt að bjóða aukreitis upp á handrunk að séríslenskum sið og allir yrðu sáttir
Allavega virðist sem svo að löggjafavaldið hafi ekkert út á slíka þjónustu að setja öfugt við saklausan einkadansinn sem er að gera alla bæjarfulltrúa geðveika og hafa menn sett bráðarbirgða löggusamþykktir þess efnis að slíkt sé ekki viðeigandi og blátt áfram stranglega bannað
Hvað væri betri eftir erfiðan dag á skrifstofunni en einmitt að láta austurevrópska yngismey nudda sig hátt og lágt í lokuðu rými sem er í raun ekkert lokað heldur einungis dregið fyrir með þar tilgerðum tjöldum?
Fyrir þessa hugmynd mína finnst mér að ég ætti að fá nokkra þóknun… en hver er spámaður í eigin föðurlandi sosem..
Góðar Stundir
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 29th, 2003 by admin
Gjössu vel mín kæra þessar rósir eru handa þér………
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 28th, 2003 by admin
eru furðulegt fyrirbæri..
Samt sem áður dvel ég þar nánast öllum stundum lífs míns
Persónulegir og ópersónulegir bloggarar að tala um líf sitt og tilveru ásamt því að drulla yfir einn og einn viðskiptavin í bland…
Vá hvað ég gæti saltað í viðskiptavini þá er ég á við frá degi til dagz ef því væri að skipta ..
Blaðagrein um eitthvað blogg er víst að valda einhverju fjaðrafoki og mynd er Ranturinn birti af henni Betu vekur stormandi lukku um allan heim og leyfi ég mér að efast stórlega um að um fölsun sé að ræða
Beta einfaldlega myndi sæma sér vel sem hin fyrsta Alíslenska klámdrottning að mínu mati og hef ég kenningu þess efnis að Ranturinn og Beta séu nú í þessum töluðu orðum að leggja drög að fyrstu myndinni í seríu sem á eftir að setja ísland á kortið í klámbransanum í nánustu framtíð
Helvítis ljósaskiltið í myndbandinu með henni Haukdal þarna sem maður fær ekki flóafrið fyrir þessa dagana er með eindæmum egósentrískt og efast ég stórlega um að þetta veki nokkra lukku á erlendri grund
Ég held aftur á móti að það hefði jafnvel verið sterkur leikur að senda Pál Óskar ásamt einhverjum af hans elskhugum út á örkina og veita Rússnesku lebbunum nú rækilega samkeppni með séríslenskri og kynörvandi hommasýningu þar sem allt væri látið flakka og endaþarmar þandir til hins ýtrasta…
Lagið sem þeir myndu raula undir væri að sjálfsögðu algert aukaatriði þar sem það er til heill haugur af gömlum slögurum sem hægt er að stela og útfæra á hommalegan hátt án þess að nokkur fatti….Allavega myndi Páll halda kjafti þar sem hann ætti í hlut;)
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 28th, 2003 by admin
Nú í dag verður Zeranico að pakka niður zorpi því er við vinnu hans er kennt því allt heila galleríið á að flytja sig um set….
Þetta er eitt það leiðinlegasta sem ég tek mér fyrir hendur,en gera þarf meira en gott þykir stendur einhverstaðar og tek ég þessu með stöku umburðarlyndi og kærleik í hjarta
Ég viðraði hugmynd að nýju útliti við meistarann er kennir sig við promazin en það átti ei upp á pallborð hjá honum svo það verður enn beðið með að setja subbulega grafík hér á síðuna
Promazvín er minn ærði máttur í þessum efnum og tek ég mikið mark á hans skoðunum
Helgin er framundan með öllum þeim kræsingum sem hún hefur upp á að bjóða og er þessi helgi talsvert meira tilhlökkunarefni en aðrar venjulegar helgar sökum þess að á morgun er liðið nákvæmlega eitt ár síðan ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast þá albestu kærustu sem ég hef á ævinni átt
Það er nokkuð sem vert er að halda í og sleppur stelpuskjátan ekki svo auðveldlega úr hrammi mínum að svo stöddu máli
Ferming er framundan einnig og þarf Zeranico að versla veglega fermingargjöf handa stúlku sem á vísan stað í hjarta mínu…
Sem Sagt Lífið er Gott
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 27th, 2003 by admin
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 27th, 2003 by admin
Sökum fullkomnunaráráttu pistlahöfundar hefur verið ákveðið að hafa síðuna svarta og grafíksnauða í óákveðin tíma ….
Svartur er jú sorgarlitur og táknrænn fyrir sorgina sem veður yfir heimsbyggðina um þessar mundir..
Lifi Látleysið
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
March 27th, 2003 by admin
Sagði maðurinn og teygaði kaffið
Andleysið í skrfium mínum er að verða óþolandi en stendur vonandi til bóta..
Posted in Uncategorized | 1 Comment »