BSOD on a Mac

February 28th, 2003 by admin

Hafiði prófað að setja Windows inn á páverbúkk?

This was done by professionals
DONT TRY THIS AT HOME!

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

T.A.T.U

February 28th, 2003 by admin

Rússneski dúettinn Tatu er að fucking meikaða ..

þvílík hugmynd að taka tvær smástelpur og klæða þær upp(afklæða) á kynæsandi hátt og kóróna svo allt saman með því að presentera þær sem lesbíur er hugmynd sem einhver sækadellik Rússabytta hefur komið í framkvæmd með fyrrgreindum árangri

Það að stelpugreyin séu að gaula eitthvað sem á að kallast tónlist er algert aukaatriði í þessu máli og sé ég fyrir mér að einhver félagi þessa sálfræðings hafi búið svo vel að eiga gamla Atari tölvu og hafi notað hana til að klambra saman einhverri drullu til að láta þær gaula undir öllum subbuskapnum …

Zeranico gefur frat í svona nokkuð
Væri ekki mikið hreinlegra að búa bara til klámmyndaseríu með þessum ólukkudrósum?

Later

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

af mólótov Banönum

February 27th, 2003 by admin

Þessi Frétt segir af fólki sem í reiði sinni kastaði Banönum að Alþingishúsinu í dag!
Hverju það hugðist ná fram með athæfi þessu er mér með öllu hulin ráðgáta því að kasta Banönum að harðsvíruðum pólítíkusum í mótmæla skyni og ætlast til að þeir taki mann alvarlega er sjálfsagt eins og að skvetta vatni á gæs, nú eða olíu á eld ef því er að skipta

Fyrir ykkur sem kunnið ekki að útbúa hinn margfræga mólotov kokteil vil ég benda á að það má með sanni og alveg örugglega finna af honum góða og gilda uppskrift á þessum vef er þú ert einmitt að sóðast á í þessum skrifuðu orðum!
Það gerir enginn grín að manni sem kastar svoleiðis gúmmelaði til hægri og vinstri …..

En að öllu gamni sleppt þá held ég svei mér þá að slíkt myndi ekki einu sinni nægja til að vekja þessa menn af þeim þyrnirósasvefni sem þeir virðast vera svo illilega haldnir og ana um í þeirru alkunnu fullvissu um að allt sem þeir geri og segi sé góðra gjalda vert og þar fram eftir götunum …..

Ég verð þó að segja að það gleður mitt litla hjarta óneitanlega að það sé þó einhver samstaða þó lítil sé sem er tilbúinn í veikum mætti að gefa mönnum þessum langt nef þó það væri ekki meira…

Next time bring the Coctails

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Pirates of Hollywood valley

February 26th, 2003 by admin

Nú er sú tíð að allt vellur í ólöglegum kvikmyndum á veraldarvefnum og kvikmyndaframleiðendur í Hollywood vita ekki sitt rjúkandi ráð …

Einhverjir snillingar hér á landi ætla sér að draga herör gegn þessum ósóma sem er að taka spón úr aski þeirra manna er hafa lifirauð á slíkum dreifingum
Mér þætti gaman að vita hvernig þeir í rassgatinu ætla að gera þetta …

Má maður eiga von á því að menn frá Ríkislögreglustjóraembættinu mæti og sparki upp hjá manni hurðinni af því að það spurðist út að maður væri með Lord Of The Rings í skítsæmilegum gæðum inn á tölvudruslunni sinni?

Frelsi einstaklingsins til að stela því sem honum dettur í hug er allsráðandi á þessum vef er kennir sig við alla veröldina (hvorki meira né minna) gæti kæri lesandi verið á undanhaldi ….

Stóri bróðir líður þetta ekki öllu lengur..

Viðbót

Zeranico var að berast eintak af þessari kvikmynd sem sýnd er hér að ofan og er í þann mund að smella henni í DVD spilarann sinn og verður umfjöllun um hana Hér von bráðar..

Þangað til þá

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Hvað er nú til ráða?

February 25th, 2003 by admin

Nú ætla þessir andskotar að banna dansmeyjum að afklæða sig í kópavoginum líka!

hvernig væri nú ef þessar andskotans druslur á hinu háa Alþingi færu nú að böggla saman einhverjum lagabókstaf varðandi þessa sívaxandi atvinnugrein?..

Það að ekki sé hægt að komast að niðurstöðu hvort þetta má eða má ekki er ekkert annað en merki um ístöðuleysi stjórnvalda svo ekki sé meira sagt ..
Hvernig væri til að mynda ef leyft væri selja barnaklám í Hafnafirði og Hveragerði en ekki á Kópaskeri og Reyðarfirði?
Myndi það ekki skjóta skökku við herra Davíð og þitt hyski?….

Ég kýs að láta liggja milli hluta hver afstaða mín er í þessu máli en hnekslan mín varðandi þetta hálfkák er slík að ég stenst ei mátið að rita um það þetta Erindi ….

Zæl að zinni

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Zeranico er gáttaður

February 25th, 2003 by admin

Hvað hefur maður eins og ég einn míns liðs gert af stórvirkjum til þess að öðlast þann heiður að vera hlekkjaður á síðu sem þessari ….

Undrun mín er slík að ég á vart orð til að lýsa henni
Ég sem hélt að ég myndi falla í þann flokk er þeir kalla skríl og ætti ennþá talsvert í land með að slepjast upp úr þeim flokk og er það sjálfsagt enn þó þeir aumki sig yfir mig á þennan máta …..

En Takk herra Rantur fyrir skemmtunina og hlekkinn, það er tvímælalaust meiri skemmtun af ykkar skrifum en öllum þeim druslum eins er tröllríða blogheimum nú á dögum..

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Fásinna

February 25th, 2003 by admin

Nú hefur enn bæst í hópinn af íslendingum sem tapað hafa vitinu í glórulausri eiturlyfjavímunni

Cannab.is er síða sem reynir á málefnalegan hátt að leiða að því gáfuleg rök að gott sé að lögleiða það sem í daglegu tali kallast Hass og Maríúana
Ekki ætla ég að fara að setja mig á háan hest gagnvart slíkum áróðri en ég stenst ekki að ræða um málið í ljósi borðans sem flassar efst á síðunni og segir að minna en 1 af hverjum 10 maríúananeytanda verði húkkt og ekki sé vitað að það hafi drepið neinn!!!!
Ég persónulega get í það minnsta nefnt einn mann sem opinbert er að hafi hreinlega reykt sig í hel en kýs að gera það ekki af tilliti til fjölskyldu hans en get þó uppljóstrað að eftirnafn hans var Marley

Einnig hef ég á lífsleið minni verið samferða talsvert af fólki sem reykti þessi efni af miklum móð og man ég ekki eftir neinum sem EKKI ánetjaðist þessu á einn eða annan hátt ………og sjálfsagt gæti Tóti vinur minn á Vogi staðfest þessi rök mín ef út í það væri farið …

Ljóst er að hassistar finnast ekki dauðir úr OverDose á klóstinu á hlemmi eða álíka en mikið djöfull held ég að þeir séu iðnir hassistarnir sem reykt hafa mikið að taka sitt eigið líf þegar þunglyndið er orðið óbærilegt…

Er ekki Íslenskur ungdómur nógu illa staddur til að ekki sé bætt á hann upplýsingum af þessu tagi sem eiga sér engar stoðir í raunveruleikanum?

Stay Cool

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Tæki og Tól

February 24th, 2003 by admin

Einhvernveginn finnst mér ég alltaf vera að lesa að þessi eða hinn hafið verið stoppaður af lögreglunni með Tæki og Tól til fíkniefnaneyslu og huxanlega eina eða tvær ellur eða 0,5gr af hassi! …

Hefur Lögreglan ekki annað við tíma sinn að gera en að ónáða blásaklausa fíkniefnaneytendur??
Hvað með innflytjendurna?
Og hvernig er ástatt í baráttuni gegn fíkniefnum þegar einu fréttirnar af þeim málum eru einmitt í þessum dúr ….?..

Er fíkniefnadjöfullinn að vinna baráttuna?
Þetta eru áleitnar spurningar kæru samborgarar
Von mín til æsku vorrar þjóðar er að hún fái að alast upp í sem heilbrigðustu umhverfi og finndist mér allt í lagi að skjóta einn og einn dópdíler ef það myndi nægja til að það fengi fram að ganga..

Fregnir frá Tælandi sýna fram á að það er mjög svo árangursrík aðferð og hefur fíkniefnavandinn þar snarminnkað eftir að lögreglan tók upp á því þarfa verki að skjóta þessa óþverra allstaðar þar sem til þeirra sést..

Stöndum saman og Drepum dópdílera…..Ekki gerir lögganða

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Jæja sagði maðurinn

February 24th, 2003 by admin

Ég sit hér í makindum í subbulegum sófa með enn subbulegri laptop í kjöltu mér þambandi drullu að hætti promazvínsins og uni mér vel..

Að vísu eru hér reykingar bannaðar en zvíninu er það fyrirgefið þar sem hann er mikill meistari og snillingur …
the sun to me is dark and silent as the moon söng meistarinn og get ég tekið undir það hressilega þar sem sólin skín hér inn um gluggan og gerir okkur nördunum lífið meira en lítið leitt …

Lifið Heil

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Secretary

February 23rd, 2003 by admin

Zeranico horfði ásamt betri helmingnum af sér á Secretary sem hefur að mér sýnist unnið til einhverja sólarverðlauna hvað svo sem það nú þýðir..
Myndi þessi lýsir á afar skemmtilegan hátt lífi ungrar konu með vægast sagt óvenjulegar fýsnir og kynnum hennar af lögfræðing einum sem hún starfar sem ritari fyrir bróðurpart myndarinnar ….

Þeir sem aðhyllast S&M ættu tvímælalaust að horfa á þessa mynd og reyndar mæli ég með henni fyrir alla þá sem hafa gaman að óhefðbundum kvikmyndum …
Varðandi subbuskapinn Irreversible sem allir virðast vera að mala um þessa dagana þá hef ég eigi séð þann subbuskap ennþá en vona að úr því rætist von bráðar..

Varðandi fortíðardýrkun mína í tónlistarmálum þá hef ég einlæga löngun til þess að koma höndum yfir meistaraverk það er Vonbrigði gaf út hér í gamla daga og hét Kakófónía og eru allar ábendingar vel þegnar…

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

« Previous Entries