Pæling

January 31st, 2003 by admin

Margir velta því fyrir sér afhverju fólk drekkur of mikið
og enn fleirri velta því fyrir sér af hverju í fjandanum fólk notar fíkniefni þar sem öllum er ljós skaðsemi þeirra!

Ég heyrði um daginn af rannsókn sem var gerð á drykkjusýki sem ætti að segja okkur að það er barasta enginn sérstök ástæða fyrir drykkjuástríðu þeirra sem eiga við hana að stríða nema kannski eitthvað í genunum
Ákveðin hópur af annars vegar öpum og hins vegar rottum var gefið áfengi í einhverri mynd sem ég er ekki klár á,en allavega höfðu kvikindin val um hvort þau notuðu það eður ei..
um 15% urðu vitlaus í vínið en hin létu það eiga sig eða vildu ekki sjá það
ætli það sé eitthvað í uppeldi apana sem gerði það að verkum að þeir drukku svona mikið eða voru þeir kannski nýbúnir að missa vinnuna eða konuna?

Mér finnst þetta mjög skemmtileg pæling í ljósi þess að miklu púðri er eytt í að komast að því AF HVERJU fólk drekkur svona mikið í stað þess að reyna að finna á því viðeigandi lausn..

Eigið góðan dag

Posted in Uncategorized | 11 Comments »

Íþróttir

January 30th, 2003 by admin

Jæja nú er komið að því að upplýsa stærsta leyndarmál Zeranico!
Það er nefninlega svo að greinahöfundur er áhugamaður um íþrótt og telst það til tíðinda fyrir mann í minni stöðu svo ekki meira sé sagt
En s.s þá styttist óðum í að nýtt keppnistímabil hefjist í þeirri lítt spennandi íþróttagrein sem í daglegu tali nefnist Formúla!
Og svona til að bæta gráu ofan á svart hef ég ákveðið að upplýsa einnig hvaða lið ég aðhyllist á þeim vettvangi af tillitssemi við þá sem eru hvað heitastir og láta ekki þekkja sig fyrir að lesa vefsíðu andstæðinga sinna….hehe
Ljóst þykir að innan skamms eða nánar tiltekið í byrjun mars breytist þessi vefur að stórum hluta í Mclaren vef Dauðans

En rétt er að taka fram að þetta er lokatilraun mín til að fylgjast með íþróttum af þessu tagi og ef þetta heldur áfram að vera eins óspennandi eins og raun hefur verið undanfarin ár þá fer ég að fylgjast með Curling

Góðar stundir

Posted in Uncategorized | No Comments »

Heimasíðugerð

January 30th, 2003 by admin

Langar ykkur að geta búið til svona flottar heimasíður?
Ef svo er þá getur þessi kennt ykkur það!

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Dead man Talking

January 30th, 2003 by admin

Ég ákvað í gamni að tékka á því hvort snillingurinn og vinur minn hann Dean Carter væri enn á lífi og samkvæmt þessum heimildum virðist svo vera
Ég skammast mín nú hálfpartinn fyrir að hafa ekki skrifað honum í þessi ár sem ég hef látið það vera:/..

En fyrir ykkur sem hefðuð áhuga á að skrifast á við dauðadæmdann mann þá er adressann hans þarna og held ég að hann yrði glaður að fá bréf á sanngjörnum og mannlegum nótum

Lifið heil

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Handbolti

January 30th, 2003 by admin

Það er sama hvert er litið það er ekki stundlegur friður fyrir einhverjum helvítis handbolta!!!
Það er aðeins eitt sport sem er meira hommalegt heldur en handbolti og það mundi vera fótbolti!
Fullt af léttklæddum stæltum karlmönnum að sprikla saman í einhvern ákveðinn tíma sem er sennilega meðaltími samfara hjá samkynhneygðum karlmönnum,og þá með sígópásunni á milli til að geta náð honum aftur upp …….svo kóróna þeir óeðlið með því að fara allir í sturtu saman á eftir!

Þetta gerir ekkert annað en að staðfesta kenningu mína þess efnis að íslendingar séu meira en lítið gefnir fyrir samkynhneygð!
Og virðist slíkt óeðli á endalausri uppleið í okkar annars ágæta þjóðfélagi

Stöndum saman!Látum banna hommasport!

Posted in Uncategorized | 4 Comments »

Frat

January 30th, 2003 by admin

Ég lýsi hér með FRATI í Batman.is og tilveruna
Sýnist mér á öllu að þessar síður séu sponsoraðar af djöflinum sjálfum sem allir vita að er Norskur og hlífir engum..

Be aware

Posted in Uncategorized | 1 Comment »

Biðin er brátt á enda

January 30th, 2003 by admin

Please forgive me
If I appear unkind
But any fool can tell you
It’s all in your mind

Down in the meadow
The old lion stirs
Puts his hand ‘cross his mouth
He has no use for words


Jæja þá styttist óðum í snilldina og má ég til að birta hérna textabrot úr einu af þeim lögum er prýða þessa sennilegast merkilegustu breiðskífu ársins sem er að byrja ….þið sem vitið ekki um hvað ég er að tala getið þambað drullu og lesið bloggið mitt bara betur or die for all I care..

Later

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Vafri

January 29th, 2003 by admin

Svona fyrir þá sem vilja vera öðruvísi en fjöldinn í vefvöfrun er rétt að benda á að nýji Opera vafrinn er kominn í final og tilbúinn til niðurhölunar

NjoY

Posted in Uncategorized | No Comments »

Ungdómur

January 29th, 2003 by admin

Eru íslensk ungmenni nú endanlega að tapa vitglórunni?
Frétt á mbl.is segir frá einhverjum krakkaskröttum sem hafa tekið upp á því vafasama athæfi að hlekkja sig við iðnaðarráðuneytið í þeim tilgangi að mótmæla virkjanaframkvæmdum eða eitthvað í þá átt! ..
Af hverju getur þetta unga fólk ekki bara hangið í einhverjum kjallaraholum og sóðað í sig fíkniefnum eins og annað fólk á þeirra reki? …..þau hafa hvorteðer örugglega aldrei farið þarna að þessum kárahnjúkum….. hvar svo sem þeir eru nú niðurkomnir

Kannski það sé bara orðið “Cool” og “inn” og hvað þetta allt nú heitir að hafa skoðanir á hlutum sem skipta mann engu máli og maður hreinlega hefur ekki hundsvit á

Ég held við séum jafn dauðrotinn og illa lyktandi hvort sem þeir virkja káranhnjúka eður ei, en eins og svo oft áður þá hefur mín skoðun ekkert úrslitavald í einu né neinu og sennilegast sem betur fer..

Gúddbæ

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

Skápadæmi

January 28th, 2003 by admin

Mér er spurn akuru Hommabloggið er svona vinsælt?

Er ísland fullt af Skápahommum eða eru hommar bara svona áhugaverðir karakterar….

Posted in Uncategorized | 2 Comments »

« Previous Entries