December 31st, 2002 by admin
I wish you enough sun to keep your attitude bright.
I wish you enough rain to appreciate the sun more.
I wish you enough happiness to keep your spirit alive.
I wish you enough pain so that the smallest joys in life appear
much bigger.
I wish you enough gain to satisfy your wanting.
I wish you enough loss to appreciate all that you possess.
I wish enough “Hello’s” to get you through
the final “Good-bye.”
So to you all I wish you ENOUGH
Nú er síðasti dagur þessa annars ágæta árs runnin upp í allri sinni dýrð og landinn keppist í meðalmennsku sinni um að kveðja árið á sem dýrðlegastann hátt með sprengingum af dýrustu og flottustu gerð
Þegar miðnótt kemur þá týnist allt í geðveiki og fögnuði og ég í meðalmennsku minni held stundum að allt þetta sé gert í þeim eina tilgangi að fagna fæðingardegi mínum sem einhverja hluta vegna kom upp á þann fyrsta janúar og á ég því afmæli einmitt um það leiti er fólk er hvað geðsjúkast ..
Vona ég að þetta gamlárskveld líði án nokkura stórslysa og limlestinga af hálfu þeirra er ætlar sér að skemmta sér nú ærlega og duglega, en það er víst lítil von til þess þar sem þetta er einmitt tíminn sem allir sem bokku geta valdið sukka af öllum þeim lífs og sálar krafti sem þeir mögulega geta
Ég sjálfur ætla að eyða þessu kveldi í faðmi þeirra fáu en jafnframt frábæru vina sem þetta líf hefur útdeilt mér og á ekki von á að myrða einn eða neinn að svo stöddu máli og vona ég að þið gerið slíkt hið sama og óska ykkur öllum gleðilegs nýss árs og velfarnaðar á komandi ári sem ég vona að verði skárra en þetta sem er að líða ……Lengi getur gott batnað
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
December 30th, 2002 by admin
Hversu ömurlegt er að þurfa að vinna til þess eins að eiga í sig og á?……
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
December 29th, 2002 by admin
Langar mig að fjalla hér á stuttan en hnitmiðaðan hátt á kvikmynd er heitir Requiem for a Dream
Þessi kvikmynd er máski komin eitthvað til ára sinna og fór sennilega aldrei hátt en hún markaði samt sem áður ákveðin spor hvað mig snertir og hafði óhjákvæmilega mikil áhrif á mig
Finnst mér hún lýsa á mjög svo sannfærandi hátt ömurleikanum þeim er fylgir því að vera fastur í viðjum fíknar af einhverju tagi
Myndin fjallar um 4 einstaklinga sem verða öll fíklar hver á sinn hátt og persónulega stríði þeirra við alla þá djöfla sem því fylgir
Ég nenni ekki að fara út í einstaka atriði myndarinnar einungis langaði mig til að deila með ykkur upplifun minni af þjáningu hennar sem ég reyndi á mislukkaðan hátt að setja saman í eina mynd með hjálp Photoshop og sýnir hún á heillandi máta snapshots úr myndinni..
Þið sem hafið ei séð hana ættuð að bæta úr því hið fyrsta og passar þetta vel sem efni á dimmu vetrarkveldi
Njoy
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
December 29th, 2002 by admin
Ég var rétt í þessu að lesa frétt á alnetinu er fjallar um mann sem af fúsum og frjálsum vilja lét annan mann éta sig og það sem meira er það fundust vídeó fælar sem sýndu báða mennina skemmta sér við að éta þann sem endaði undir hnífnum ….
Fórnarlambið og gerandinn kynntust á internet spjallrás og voru báðir háttskrifaðir tölvusnillar einhverjir og internet fíklar eins og greinin segir ..
einnig hafði sá étni skipulagt þetta morð á sjálfum sér það nákvæmlega að hann hafði gert erfðaskrá stuttu áðu og þ.h
hvað fær mann í góðri stöðu með fullt rassgat af peningum til að láta éta sig lifandi af fúsum og frjálsum vilja spyr ég nú bara?..
Read it and weap….its a sick sick world
Posted in Uncategorized | 138 Comments »
December 29th, 2002 by admin
Samstarfsverkefni Sony,Intel og ónefnds hjálpartækjaframleiðanda hefur loksins litið dagsins ljós og er væntanlegt í allar betri hjálpartækjaverslanir um eða upp úr áramótum ….
Order now we have limited supplies
Posted in Uncategorized | 3 Comments »
December 29th, 2002 by admin
Ég var rétt í þessu að rekast á umfjöllun um nýjustu afurð Meistarans sem er væntanleg í allar betri plötuverslanir í byrjun næsta árs
Held ég vart vatni af spenningi fyrir þessari plötu sem og öðru sem að kemur úr smiðju þessa manns…
Hvet ég alla þá sem ekki þekkja verk hans nú þegar að hætta þessu hálfkáki og drífa sig í næstu hljómplötuverslun og ná sér í eintak af einhverri af fjölmörgum verkum hans sem ætti að fást í nær öllum verslunum er versla með tónlist af viti
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
December 28th, 2002 by admin
Stöldrum aðeins við og athugum hvað það er sem er að táldraga mannkynið á þessari öld..
Í stórum dráttum held ég að það sé í gundvallaratriðum það sama og hefur verið að gera fólk að fíflum margar aldir aftur í tímann
áfengi og fíkniefni eru langt því frá að vera eitthvað nýtt undir sólinni og hefur það verið að ég held eitt mesta böl mannkyns frá því að maðurinn kreisti fyrsta vínberið samanber gömlum heimildum tildæmis hinni víðfrægu biblíu sem allir elska að hafa skoðun á án þess þó að hafa nokkurn tíma blaðað í henni
Kynlífstengt athæfi hefur einnig verið æði vinsælt hjá hinum illu öflum í fyrrnefndum tilgangi og nú nýjast má nefna klámbyltinguna sem veður inn um skynjunarvit þeirra er eyða tíma sínum vafrandi um veraldarvefinn…
Morð og ofbeldisverk eru klassísk og má útfæra þau á allan þann hátt er fólk kærir sig um og er nánast örugg leið til glötunnar
Mynd þessi hér að ofan ætti því að kovera þetta allt saman á einn eða annan hátt
ástæða mín fyrir þessum skrifum er einfaldlega áhugi minn á mannlegri hegðun fyrr og síðar og sýnist mér að þótt fólk þykist alltaf vera að upplifa nýja hluti í þessu öllu saman að fátt sé í raun nýtt undir sólinni í mannlegri hegðun heldur aðeins spurning um mismundandi útfærslur
Öll erum við bersyndug og skítug upp fyrir haus í subbuskap þeim er umræðir á einn eða annan hátt, en aftur á móti vona ég að sem flestir gefi því gaum nú um þessar mundir sem hátið ljóss og friðar er í algleymingi hvert við erum í raun að fara og hvað við viljum gera við þetta líf sem kemur mér fyrir sjónir sem lærdómur og aftur lærdómur
Þó ég telji mig vart kristinn mann held ég þó að ég sé í grundvallaratriðum sammála mörgu því er kristinn trú hefur fram að færa og reyni að tileinka mér slíkt á þessu rölti mínu um skuggasund tilverunnar
Happy Living
Posted in Uncategorized | No Comments »
December 27th, 2002 by admin
Hér gefur að líta nýlega mynd sem einn af baráttumönnum réttlætisins var rétt í þessu að senda mér
sýnist mér á öllu að hún sé af meintum fylgismanni antikrists að prufukeyra nýjasta gereyðingavopnið í herferð þeirra í þágu djöfulsins og hefur það fengið vinnuheitið “Microsoft Windblows Longhorn” og á sennilegast eftir að valda miklum usla þegar það kemst í umferð
Bið ég alla mína lesendur að hafa varan á ef það fær einhver gylliboð frá þessum ódámum í náinni framtíð
Drive safely …use Linux;)
Posted in Uncategorized | 2 Comments »
December 27th, 2002 by admin
Nú fer að verða fokið flest skjól því Bandaríkjastjórn undir forrystu hins mikla meistara George Bush ætlar að fara að ritskoða það sem fram fer á hinu mikilsvirta Interneti
hvað verður þá um allan þennna yndislega sora sem allir elska að skoða tímunum saman?
Klámfyrirtæki verða sjálfsagt gjaldþrota og annað eftir því
Blogmeistarar eins og ég sjálfur verða útilokaðir og bannaðir með öllu
Og allt endar þetta sjálfsagt með því að mannfólkið verður undir hælnum á microsoft og þvílíkum subbuháleistum og glæpamönnum sem hafa það eitt að markmiði að græða á okkur sem getum ekki ekki varið okkur
Þessi yndislega kommúna sem internetið hefur verið á sjálfsagt eftir að liða undir lok í þeirri mynd sem það er í dag og fólk getur sig hvergi hreyft án þess að borga fyrir ósóman með Visa eða einhverjum slíkum ósóma sem einnig er komið til að slátra og myrða okkur lítilmagnana
Þið ykkar sem sjáið ekki samsærið í þessu öllu saman ættuð hið snarasta að hætta að éta allt þetta prozac því það er einmitt líka tæki búið til af djöflinum till þess eins að slá ryki í augu okkar sem sjáum þetta allt í réttu ljósi
Geðlæknar sem eru ekkert annað en handbendi djöfulsins segja okkur að þetta sé í raun þunglyndi og eymd sem við búum við og þurfum því að taka lyf til að rétta sjón okkar á veruleikanum og sjá eins og hinir sem ganga um í blindni á allt það sem er verið að brjóta á okkur dag frá degi…
p.s meðfylgjandi mynd er talin vera af antikristi sem biblían spáði sannlega fyrir um að kæmi einmitt nú um þessar mundir til að afvegaleiða mannkyn
Lifið Heil
Posted in Uncategorized | 2903 Comments »
December 27th, 2002 by admin
Athygli skal vakinn á þvi að nýr hlekkjaflokkur hefur verið settur á síðuna sérstaklega tileinkaður þeim konum og körlum sem telja sig eiga við áfengis eða fíkniefnavandamál að stríða og eru að leita lausnar á þeim málum
Þetta geri ég í framhaldi af fíkniefnaumræðunni allri sem á undan hefur farið og vona ég að nú geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi í þeim málum
Sæl að sinni
Posted in Uncategorized | 1 Comment »