Sumartilboð

Posted in Ljósmyndun | No Comments »
Í vetur sem leið auglýsti ég á facebook eftir vefhönnuð sem væri til í að smíða fyrir mig lítinn ljósmyndavef gegn greiðslu í formi ljósmyndar að eigin vali, sem Helgi Páll Einarsson gekkst við & úr varð enn ein útgáfan af zeranico.com
Helgi verandi vel gefinn ungur maður valdi myndina hér að ofan (mynd vantar) sem er skemmtilegt í ljósi þess að hún er klárlega ein af mínum eftirlætis portrait myndum.
Myndin er tekin úti við húsvegg heimilis þessa gamla manns austur í Úkraínu, nánar tiltekið í Krasnyi Luch sem er lítill kolanámubær í austurhluta Úkraínu, þar sem hann sat og naut kvöldsólarinnar með ektakonu sinni sem vildi ekki fyrir nokkra muni fá af sér ljósmynd, og hafði eiginlega af því stórar áhyggjur að ég vildi hafa af þeim fé með þessum gjörning.
Fregnir hafa borist okkur hjónum af andláti þessa gamla manns & situr konan hans nú ein út við húsvegginn & hvílir lúin bein sín.
Athygli skal vakin á því að myndirnar mínar er velfelstar hægt að fá keyptar fyrir sanngjarnt verð í föstu formi.
Myndin af ofan var prentuð af Myndval í mjódd á hágæða ljósmyndapappír & römmuð inn í fallegan viðarramma.
Góðar Stundir
Posted in Ljósmyndun | No Comments »
Ég viðurkenni að mér finnst erfitt að láta myndirnar mínar af hendi til einhvers annars, ég óttast alltaf viðbrögðin einhvernveginn & gildir einu um hvort þær eru á stafrænu formi eða á prenti.
Sérstaklega á þetta við um þegar mér hefur á einhvern hátt verið greitt fyrir myndefnið, þá er svona lítill púki sem hvíslar að mér að þetta sé nú vart peninga virði & ég væri bara þjófurur & ræningi að þyggja fé fyrir þetta smáræði.
Heldur hef ég svosem ekki selt mikið af verkum á prenti en einhvernveginn hef ég þó haft betri tilfinningu fyrir að láta fólki í té mynd á prentuðu formi sem ég hef fengið færi á að virða fyrir mér helst í nokkra daga áður en ég samþykki að hún sé nægilega góð.
Nú á dögunum seldi ég til myndlistarháhugamanns veglega seríu portretta af útigangsmönnum í reykjavík (sem flestar má finna á zeranico.com) en hann hefur nú keypt alls níu portrett, átta af þeim eru óafhend en prentin hef ég þó fengið í hendur & er næsta skref að finna þeim ramma við hæfi.
Mér hefur aldrei liðið eins vel & verið eins sáttur við að selja afurð mína í ljósmyndun en einhvernveginn hafa þessi portrett alltaf verið mér kær, & á margan hátt það flottasta sem ég hef gert í ljósmyndun!
Ekki skemmir fyrir að pappírsval & prentun á myndunum eru slíkt fyrirtak að ég hef aldrei séð annað eins á mínum myndum, en sú vinna skrifast alfarið á Christopher Lund þann víðfræga trommuheila & stórljósmyndara.
En rammarnir eru eftir…….
Posted in Ljósmyndun | 2 Comments »
Mig langar að vita hvort einhver hérna hefur prófað að nota svona gamlar manual focus linsur á EOS DSLR vé (EOS 5D í mínu tilfelli)l, Canon FD eða jafnvel gamlar Nikkor linsur, og ef einhver væri hvort sá væri til í að deila reynslu sinni af því, kostum & göllum, hvort einhverjir adadterar séu verri en aðrir osfrv..
Ástæðan fyrir að ég er að spá í þessu er sú að þessar gömlu linsur er oftar en ekki hægt að fá talsvert ódýrari en nýju fínu auto focus linsurnar með rauðum & gylltum hringjum…. jú jú maður er lengur að manual fókusa en ég er yfirleitt ekkert að drífa mig svo ásamt því sem ég hef ágæta þjálfun í að fókusa handvirkt.
Helst ber ég losta til fastrar linsu á bilinu 100-150mm í portrettur & annað tilfallandi!
Posted in Ljósmyndun | 1 Comment »

A street child slept under a bridge to take shelter from the rain in Manila Thursday. The Philippines is readying evacuation centers and alerted residents for possible flash floods and landslides as Typhoon Chan-Hom heads for the main northern Luzon island.(Romeo Ranoco/Reuters)
Posted in Ljósmyndun | No Comments »
Í hliðstæðri veröld þar sem ég myndi framkvæma hugmyndirnar mínar myndi ég halda ljósmyndasýningu sem væri þannig útbúin að á veggjunum væru litlir svartir kassar með gægjugötum sem áhorfendur þyrftu að leggja augað upp að til að sjá myndirnar sem væru pósitívar filmur á einskonar mini ljósaborði.
Voða artí ekki satt?
Afsakið mig ég þarf að hafa hægðir…..
Viðb: Þess má einnig geta ef það hefur ekki komið fram nú þegar að mér hefur einnig dottið í hug að halda sýningu á áteknum en óframkölluðum filmum!
Posted in Ljósmyndun | No Comments »

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com
Bronica SQ-A, Fuji Pro 400H
Posted in Ljósmyndun | 4 Comments »
Yfirleitt fer það nett í taugarnar á mér að fólk skuli taka sér bessaleyfi til að nota myndirnar mínar í eitthvað sem þeim finnst sniðugt & er slíkt í langflestum tilfellum óásættanlegt athæfi í mínum bókum.
Í tilfelli Munnriðar fannst mér það aftur á móti nett fyndið & hef ég, ásamt Ásdísi (að því ég best veit) nú þegar veitt hljómsveitinni góðfúslegt leyfi til að nota myndina hljómsveitinni til gífurlegs framdráttar & tafarlausar heimsfrægðar.
Tómdæmi og aðrar upplýsingar um hljómsveitina má finna á myspace á vefslóðinni http://myspace.com/munnridur
Lifið Heil
Posted in Ljósmyndun | No Comments »

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com
Bronica SQ-A, Ilford HP5+
Posted in Ljósmyndun | 3 Comments »