Brúðkaup

February 1st, 2010

Ég hef einungis tvívegis verið beðinn um að taka ljósmyndir við brúðkaup.

Í fyrra skipti var það Ásdís Rán Gunnarsdóttir sem spurði mig hvort ég gæti tekið að mér að mynda brúðkaup hennar & eiginmanns hennar, sem ég man því miður ekki hvað heitir, en við hana sagði ég að ég tæki því miður ekki að mér að ljósmynda brúðkaup.

Seinna skipti var það fyrrum mágkona Barbara Hafey sem leitaði til mín þegar hún gekk í það heilaga með sínum ektamanni honum Guðmundi hinum prýðilega & tók ég það glaður að mér þó um hátíð væri.

Ég er sennilega ekki brúðkaupsljósmyndaratýpan bara….

Posted in Almennt | engar athugasemdir »

Kvíðinn er verstur

February 1st, 2010

Ég viðurkenni að mér finnst erfitt að láta myndirnar mínar af hendi til einhvers annars, ég óttast alltaf viðbrögðin einhvernveginn & gildir einu um hvort þær eru á stafrænu formi eða á prenti.
Sérstaklega á þetta við um þegar mér hefur á einhvern hátt verið greitt fyrir myndefnið, þá er svona lítill púki sem hvíslar að mér að þetta sé nú vart peninga virði & ég væri bara þjófurur & ræningi að þyggja fé fyrir þetta smáræði.

Heldur hef ég svosem ekki selt mikið af verkum á prenti en einhvernveginn hef ég þó haft betri tilfinningu fyrir að láta fólki í té mynd á prentuðu formi sem ég hef fengið færi á að virða fyrir mér helst í nokkra daga áður en ég samþykki að hún sé nægilega góð.

Nú á dögunum seldi ég til myndlistarháhugamanns veglega seríu portretta af útigangsmönnum í reykjavík (sem flestar má finna á zeranico.com) en hann hefur nú keypt alls níu portrett, átta af þeim eru óafhend en prentin hef ég þó fengið í hendur & er næsta skref að finna þeim ramma við hæfi.

Mér hefur aldrei liðið eins vel & verið eins sáttur við að selja afurð mína í ljósmyndun en einhvernveginn hafa þessi portrett alltaf verið mér kær, & á margan hátt það flottasta sem ég hef gert í ljósmyndun!

Ekki skemmir fyrir að pappírsval & prentun á myndunum eru slíkt fyrirtak að ég hef aldrei séð annað eins á mínum myndum, en sú vinna skrifast alfarið á Christopher Lund þann víðfræga trommuheila & stórljósmyndara.

En rammarnir eru eftir…….

Posted in Ljósmyndun | 1 athugasemd »

Linsupælingar

January 31st, 2010

Mig langar að vita hvort einhver hérna hefur prófað að nota svona gamlar manual focus linsur á EOS DSLR vé (EOS 5D í mínu tilfelli)l, Canon FD eða jafnvel gamlar Nikkor linsur, og ef einhver væri hvort sá væri til í að deila reynslu sinni af því, kostum & göllum, hvort einhverjir adadterar séu verri en aðrir osfrv..

Ástæðan fyrir að ég er að spá í þessu er sú að þessar gömlu linsur er oftar en ekki hægt að fá talsvert ódýrari en nýju fínu auto focus linsurnar með rauðum & gylltum hringjum…. jú jú maður er lengur að manual fókusa en ég er yfirleitt ekkert að drífa mig svo ásamt því sem ég hef ágæta þjálfun í að fókusa handvirkt.
Helst ber ég losta til fastrar linsu á bilinu 100-150mm í portrettur & annað tilfallandi!

Posted in Ljósmyndun | engar athugasemdir »

Kreppubílar

January 10th, 2010

Kreppubílar Exhibition

Ég ætla að vera með kreppuljósmyndasýningu fljótlega á bílamyndum mínum frá Úkraínu.

Ég er búinn að prenta myndirnar kreppustyle heima á blekarann & er næsta skref að finna eins ódýra ramma & mögulegt er.

Síðan er pælingin að leigja bás í kolaportinu í byrjun febrúar t.d þar sem myndirnar yrðu til sýnis & sölu á kreppuverði að sjálfsögðu.

Meira um það á seinni stigum málsins.

Viðb: Myndirnar verða um 25 talsins 26X17cm með smá hvítum kanti í svörtum ramma. Myndirnar verða seldar í einu eintaki hver á sérstöku kreppuverði.

Posted in Almennt | 1 athugasemd »

December 21st, 2009

Honum finnst svo fallegt þegar hún prjónar!

Posted in Almennt | engar athugasemdir »

December 14th, 2009

Nýr zeranico.com hefur litið dagsins ljós.

í stað þess að velja svart eða hvítt sem ég stóð frammi fyrir tók vésírinn snjalli sem bauð sig fram til verksins sig til & smíðaði vef sem er hvorutveggja, því með því að smella á Black hlekkinn í fótnum verður vefurinn nefninlega eins & fyrir Barbabrellu alveg kolbikasvartur, það er nú meira hvað það er sniðugt!

Í stað þess að vera bara með rosalega mikið af drasli á þessum vef eins & hingað til hefur verið venjan reyndi ég að vanda aðeins meira til efnisvalsins, ásamt því sem það er auðvitað bara breytilegt fyrir hverju maður er stemmdur & svona er ég sumsé stemmdur núna.

Posted in Almennt | 1 athugasemd »

Notice

December 11th, 2009

Ég er að hugsa um að fara að blogga aftur eftir hlé….er einhver að hlusta?

Allavega ætla ég að skrifa að gamni mínu ítarlega myndskreytt áramótaávarp!

Posted in Almennt | 5 athugasemdir »

Á Sjó

July 4th, 2009

© Pjétur Geir Óskarsson - zeranico.com

Meira á flickr

Posted in Ljósmyndun | 4 athugasemdir »

May 9th, 2009

Ég er að rifna úr grobbi yfir hvað konan mín er flott í öðtum þætti hinnar æsispennandi vefseríu Circledrawers :)

Posted in Almennt | 2 athugasemdir »

Growing Old is Getting Old

May 8th, 2009

So we all
Are growing old
And it’s getting old

Pressure on
Our hollow bones
and the varicose

Suddenly
We decompose
But we’re not alone

So we all
Are growing old

Maybe we’re sealed in silence
And maybe we feel a guidance
Maybe your own devices
Will keep you afraid and cold
But i

Memorized
Your smile lines
From left to right

Came to life
And childlike
Reaction time

We’re allowed
To expire
With ourselves in mind

So we all
Are growing old

Pull out the fear of silence
And put out the need for guidance
And put out your own devices
And don’t be afraid of the cold

And we sing, sing, sing.
Fight, we fight, we fight.
We cry, cry, we cry.
We slide, slide, we slide into the light.

Do we sing, fight, we cry?
we slide, slide, we slide into the light.

Maybe we’re sealed in silence
And maybe we feel a guidance
Maybe your own devices
Will keep you afraid and cold, well.

Pull out the fear of silence
Put out the need for guidance
Put out your own devices
And don’t be afraid of the cold
Afraid of the cold
Afraid of the time
You’ve got no where to go but here.

- Silversun Pickups

Posted in Almennt | engar athugasemdir »

« Previous Entries